fimmtudagur, júní 15, 2006

Ég er svo ofurskipulögð Eða ekki, dísús, morgundagurinn hjá mér verður crazy, er að vinna frá 7:30-16:30, með einni pásu frá kl.10-11, og svo er brottför frá BSÍ kl.17 og keyrt að Skógum, og byrjað að rölta Fimmvörðuhálsinn. Held það verði samt bara frekar stutt ganga þá, og svo alvöru gangan á laugardag. Og þið megið geta þrisvar hvort ég sé búin að pakka, öh nei, var bara að koma úr búðinni þar sem ég keypti mér kex, flatkökur og súkkulaðirúsínur til að taka með, mjög hollt og staðgott nesti;oþ Og ég á eftir að pakka, og er ekki að nenna því, er ógó þreytt:-/ En neyðist til þess, fæ kannski jafntefliskónginn til að hjálpa mér þegar hann kemur hjem. Jájá, enn eitt jafnteflið hjá Grindavík:-/ Sem er nottla skárra en að tapa, en sökkar samt töluvert
meira en að vinna!
Dísús, ég var nú samt næstum því búin að vinna vinsældakeppni áðan! Íbúðalyklakerfið hjá okkur núna, af því að við erum bara með einn lykil, er þannig að ég er með póstkassalykilinn og Eysteinn skilur svo íbúðalykilinn eftir í póstkassanum þegar hann fer. Nema bara að áðan var ég með fullar hendur að reyna að ná bévítans lyklinum, en enda á að ýta honum oní einhverja rauf og niður í næsta póstkassa!! Meiriháttar alveg! Ég fer og tékka á póstkassaeigandanum, þið megið geta þrisvar hvort hann var heima, öh nei. Þannig að ég gríp þá bara til minna ráða, og aldrei á ævinni hef ég verið jafn ánægð að vera með mjóu spaghettíputtana mína! Náði að troða höndunum inní póstkassa nágrannans (þetta eru svona láréttir póstkassar) og gat náð upp lyklinum:oD Vá hvað ég var glöð! Hefði ekki alveg nennt að standa í að vera læst úti og eiga engann aukalykil..!

Jæja, verð að fara að drullast til að pakka niður, hvað er samt málið með fólk sem er með sólgleraugu inni, t.d í búðum og þannig? Mér þykir leitt að hryggja ykkur, en það er ekki töff! Eiginlega bara alveg off. Oh well, ekki það að mér komi það við, fæ samt alltaf pínu kjánahroll þegar ég sé þetta. Kem sennilega eki með færslu fyrr en eftir helgi, hafið það gott þangað til litlu lömbin mín...

2 ummæli:

Eva sagði...

ef að þið eruð ekki með tjald með ykkur þá ert þú að fara að rölta helminginn af leiðinni í kvöld, þ.e. upp í skálann!!
og ef þú vilt selskap í stoppinu þínu á Hvolsvelli (veðrur pottþétt stoppað hérna), bjallaðu þá í mig og ég tek eitt útkall á þig ;)... hefði svoooooo viljað vera að fara með þér í staðin fyrir að vera á vaktinni í kvöld takandi á móti fullum unglingum af Skítamóralsballinu sem haldið verður í Austur Landeyjum í kvöld!!

bjarneybje sagði...

já það verður stoppað á Hvolsvelli, ég læt pottþétt heyra í mér ef síminn minn verður enn á lífi!

Góða skemmtun á vaktinni! Tek þig með næst (sé alveg fram á að fá þoku og skemmtilegheit í þessari umferð, ætli maður verði þá ekki að fara aftur til að sjá náttúruperlurnar!)