sunnudagur, júní 18, 2006



Humm, eru þessar buxur ekki í þrengri kantinum???

Að öðru, er komin heim úr göngunni góðu. Á föstudag lentum við í svo miklum viðbjóði að ég var búin að ákveða að fara ALDREI aftur í fjallgöngu! Lögðum af stað úr bænum kl.17:00 (ég var mætt á BSÍ kl.16:59, þar sem það var ALLT búið að fara úrskeiðis þann daginn!) Byrjuðum svo að labba kl.20:30, og það átti að vera 4-5 tíma ganga. Þetta var einhver ný leið sem Útivist er að bjóða uppá, (vestan megin við Skógarfoss ef það meikar eitthvað sense fyrir einhvern!) en við enduðum á að ganga í tæpa 8 tíma, í grenjandi rigningu, roki, slyddu og svarta þoku! Og ég ehld að á tímabili höfum við verið hálfvillt! Gekk ekkert smá illa að finna fjandans skálann, og guð minn góður hvað okkur leið illa:-/ Og ég var orðin svo pirruð og leið svo illa að mig langaði helst að fara að grenja, og svo varð ég enn pirraðri og svekktari þegar ég leyfði mér að fara að hugsa um að ég gæti verið heima á Eggertsgötunni, undir heitri sæng, í góðu kúri! Þegar við loksins römbuðum á bévítans skálann þá þurfti skálavörðurinn að hjálpa okkur að losa af okkur bakpokana því puttarnir voru algjörlega frosnir og óstarfhæfir! En ég skreið svo ofan í svefnpoka og rotaðist, rétt rumskaði þegar 17 manna hóður kom á eftir okkur (við vorum 8) og þurfti að koma sér fyrir þarna líka, í ansi litlu rými!

En svo nenni ég eiginlega ekki að skrifa meir þar sem restin af ferðinni var frábær, kynntumst fullt af skemmtilegu fólki (vorum samferða 17 manna hópnum niður í Bása) gott veður, góð aðstaða í Básum, skemmtilegur félagsskapur í gærkvöldi í Þórsmörkinni og ég fer sko pottþétt aftur í fjallgöngu;oþ Svaf líka eins og ungabarn allann tímann sem hægt var að nýta í svefn! Samferðafólkið átti ekki til orð yfir hversu mikið og vel ég svaf! Var bæði að vinna upp síðustu viku sem var ansi strembin, og svo nottla margra ára kæfisvefn sem lagaðist ekki fyrr en ég fór í nefaðgerðina miklu! (setti myndina með til að rifja þetta upp fyrir ykkur;oþ)

Jæja nenniggi meir, later kids...

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ógesslega sæt að vanda :)

bjarneybje sagði...

hehe já þetta er mögnuð upplifun! En ég fæ alveg öfundarglampa í augun við að lesa um þig í USA! Langar ekkert!! einmitt!;oþ

Nafnlaus sagði...

Ég þarf að fara að drífa mig með þér í fjallgöngu núna þegar ég er búin í prófinu :) Er alveg græn af öfund að lesa um allar þessar ferðir þínar..

fiapia sagði...

Varstu að hjóla í Bryggjuhverfinu í gærkvöldi? :)

bjarneybje sagði...

neibb það var ekki ég, en með þessari spurningu vaktirðu upp samviskubit hjá mér vegna þess að ég er ekki búin að vera nógu dugleg að nota bévítans hjólið sem ég VARÐ að fá!!! Nú byrja ég að vera dugleg..! ;oþ

fiapia sagði...

Heheh nei, ég bara starði á stelpu á hjóli sem var að hjóla með strák og klæddi sig alveg eins og þú og var með ljóst hár. ÉG næstum því snéri við og ætlaði að láta hana fá skattaskýrsluna þína hahahahahah ;)