miðvikudagur, febrúar 08, 2006

bara smá blogg fyrir lúllinn;oþ



Arna vinkona sagði einu sinni að það fyndnasta við mig væri eiginlega hvað mér fyndist ég fyndin sjálf! (sem meikar alveg sense, myndi nottla ekkert segja hlutina ef mér fyndust þeir ekki fyndnir! En ég ætti kannski að reyna að halda aðeins aftur af því að skellihlægja af eigins bröndurum:-/) en ég er búin að komast að því að ég hef aðeins misst niður fyndnina mína:-/ Var að lesa gamlar bloggfærslur, td. þessar hérna, og ég verð að viðurkenna að ég hló pínu, dísús ég var bara í ruglinu. Poppa-sögurnar (sjá mynd, þetta er s.s PopEye, a.k.a Poppi, augnlausa hliðin) hafa t.d alveg legið niðri síðustu misseri:-/ en hérna er ein(gömul):
"Af Popeye er það annars að frétta að hann var lagður inná spítala með garnaflækju. Það má rekja til þess að ann syndir alltaf í sömu áttina (mjög líklega af því að hann er bara með eitt auga) þannig að læknirinn sagði honum að breyta stundum til og synda í hina áttina, þá leysist sjálfkrafa úr flækjunni. Reyndar vaknaði ég nokkrum sinnum í nótt við að hann synti utan í kúlulvegginn (mjög líklega af því að hann er bara með eitt auga og sér ekki þeim megin sko) en hann hlýtur nú að fara að læra leiðina utan að..."

Annars ekkert að frétta, kíkti aðeins á víkingskellurnar á æf. áðan og ég verð með í leiknum á morgun:oD Djöss brill, ligg núna á hitapoka og ætla að mæta eins og nýsleginn túskildingur í leikinn! ;oþ

Svo er ömmu og afa dagur á Hofi (leikskólinn sem Óskar Dagur er á) en mamma kemst ekki þannig að hann bauð uppáhaldsfrænkunni í staðinn:oD (mér s.s ef þið voruð ekki að fatta það!), vona að hann sé ekki bara að röbba því inn að frá og með föstudeginum telst maður ekkert unglamb lengur:-/ Allavegna verið að meika eitthvað statement með að bjóða manni á ÖMMUDAG! Heheh, neinei vonandi er statementið bara það að hann vill að ég komi til að sjá hvað hann er búinn að duglegur. Hlakka allavegna til að fara og sjá hvað litla gerpið er búið að vera að bralla á leiksólanum:oD

Verð að fara að sofa, verð að safna kröftum fyrir stórleikinn á morgun;oþ

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

var einmitt að velta fyrir mér afhverju þessi mynd væri!! híhí.. og hey mér finnst bara ekkert að því að skella uppúr yfir eigin fyndni ;O)