föstudagur, febrúar 24, 2006

Ég er svoooo mikið nörd!

Dísús, fór áðan að kaupa 3 púlsmæla (!) allir að smitast af "gleðinni"! (fer sko oft og kaupi fyrir fólk því ég get farið í pásunum mínum, en flestir fastir í vinnu) Þetta er algjör snilld sko, en það er samt ekki point sögunnar..! Þegar ég var að kaupa mælana þá var soldið sætur gaur inní búðinni. Svo var ég að fara og set í bakkgír og held af stað, finn svo að ég keyri á kant en lít í spegilinn og sýnist að þetta sé bara kantur sem ég get farið uppá og svo bara niður aftur. Hins vegar það sem ég sá ekki var helvítis staurinn uppá kantinum! Og ég knúsaði hann aðeins:-/ En það versta var að sæti gaurinn sá þetta allt saman og sennilega hef ég misst allt kúlið med de samme!! Reyndar þekki ég manninn sem var með honum og hann veit að ég er ekkert rosalega illa gefin að upplagi þannig að ég vona að hann hafi afsakað mig fyrir mína hönd:-/
En þetta er hins vegar ekki búið sko, fór á bensínstöð til að fylla kaggann áður en ég skilaði honum (er núna komin á ljósbláann Yaris:o)) og þar var annar sætur gaur, sem er stundum að æfa í Sph. og veit alveg pínu hver ég er, en ég er sennilega alveg kúllaus í hans augum núna! Fyrst lenti ég í vandræðum með að opna bensínlokið (hefur aldrei gerst áður!) og svo festi ég bensíndæluranann inn í rörinu (hefur heldur aldrei gerst áður!) og var soldið klaufaleg við að dælunni úr:-/
Svo spyr maður sig af hverju maður eigi ekki kærasta..!

Annars er ég komin með 3 keppendur í nýju kaloríukeppnina mína, túddúrú verður spennandi að sjá hvort þessir séu worth the task..! ;oþ

Hey það er greinilegt að karmað mitt er að gera gott mót þessa dagana" Fékk sms frá einum kúnnanum mínum um daginn:"hæ dúlla, vantar þig íþróttagalla?" (hann var útí Flórída) ég bara:" öh já, vantar alltaf íþróttaföt;oþ en get reyndar ekki gengið í Adidas:-/ " Svo hringdi hann á leiðinni í Nike outlet-ið og ég bað hann bara að svipast um eftir hlaupatoppum. Svo kom hann í morgun með poka til mín, með 3 geðveikum toppum, bæði geðveikt flottir og góðir. Reyra brjóstin svo mikið niður að ég fæ nánast útbungun á bakið! (það er jákvætt sko, brjóst eru ekki vinsæl uppfinning í mínum heimi!) hehe nei nei reyra samt ekkert svo mikið, á meirsegja eftir að máta þá, en þeir lúkka heavy góðir! Svo spurði ég hvað ég skuldið fyrir toppana, þá kom:"Ekki neitt, mátt bara eiga þá" Ekkert smá indæll! En hann fékk nú samt einn koss á kinnina að launum.
Ætla að fara að hlaupa núna og prófa einn af nýju toppunum mínum:oD

Þannig að ég hef því miður ekki meiri tíma til að púkka upp á ykkur gott fólk, later...

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vorum við ekki búin að setja bann á þessa brjósta/rassa umræðu undanfarinna daga? :)

bjarneybje sagði...

samt ert þú alltaf að starta nýrri umræðu! Þú t.d byrjaðir áðan að ræða brjóstareyringar og þaðan fékk ég hugmyndina í blogginu mínu, ekki einu sinni látast sem þér leiðist þessa brjósta/rassa umræða!! ;oþ

Sveifin... sagði...

hahahaha... algjör snilld Bjarney mín ;)

Nafnlaus sagði...

Hvað heita þessir kaloríumælar ?

bjarneybje sagði...

þetta er inn í Polar púlsmælinum mínum...

Já Svava mín, þetta er bara ekkert nema eðlilegt..!

Nafnlaus sagði...

takk, en hvað heitir Pólar græjan :)

bjarneybje sagði...

F 11
þetta er kvenmannstýpan:

http://www.polar.fi/polar/channels/eng/segments/Fitness/F11_female.html

og þetta er venjulega týpan:

http://www.polar.fi/polar/channels/eng/segments/Fitness/F11.html

Nafnlaus sagði...

hvað var málið með óheppnina enn þetta er eðlilegt þú ert bara stelpa þær gera þetta reglulega lol.