
Fyrsti dagur kalorúkeppninnar í dag, og ég er að stúúúúúúúúta þessu! Staðan er 209 (lyftingar)+ 626(skokkaði í 50 mín, hjólaði í 10 mín))+497 (skokkaði í 40 mín) = 1332 he. á móti 282 he. hjá keppinautinum! Reyndar er vinnan hans að trufla hann í keppninni (!), en ég reyndar naut góðs af tveimur beilum í morgun. Jafn pirrandi og mér finnast þessar óvæntu einskis nýtu klukkutímapásur, þá var ég úber dugleg í morgun og æfði bara í staðinn, og var búin að ákveða fyrir löngu að nota seinniparts pásuna í skokk þannig að mar verður að standa við það líka. Dísús, ég er sennilega jafn einföld og rotta (sem eru nú samt mjög greindar sko, en samt mjög auðvelt að skilyrða þær) það er sett upp smá keppni og ég bara missi mig, en ég ætla að vinna, tilgangslaust að keppa ef maður ætlar svo bara að vera í einhverjum skátafíling!
Öh svo eru hin veðmálin líka í góðum gír, 3. nammilausi dagurinn í dag, og hefur ekki einu sinni langað í, reyndar eru helv... hörbó börin algjört nammi, en samt svona "hollustu"nammi þannig að það fleytir mér yfir erfiðustu hjallana, og svo er ég ekki búin að fara á vigt þessa viku sem veðmálið hefur staðið yfir, nú eru bara 24 dagar eftir! Þannig að ég er bara í góðum gír þessa dagana...
Merkilegt nokk, en ég held ég hafi bara ekkert meira að segja! Fór reyndar með Óskar Dag á Oliver Twist um helgina, og ég vissi ekki að hún væri bönnuð inná 12 ára (Takk fyrir að segja mér það afgreiðslustelpa!!!) Hann er sko 6 ára! Og ég sagði henni það þegar ég var að spyrja um miðaverð, hefði kannski verið í lagi að benda manni á aldurstakmarkið, stóð allavegna hvergi uppi við. En það á víst að vera í lagi að krakkar undir 12 fari ef þeir eru í fylgd með fullorðnum! Kannski hefði ég svo sem getað sagt sjálfri mér að Roman Polanski myndi ekki gera barnalega barnamynd! Dísús, ég var bara í því alla myndina að telja barninu trú um að þetta væri ekki alvöru blóð og að þeir sem dóu væru ekki dánir í alvörunni o.s.frv. Hef sennilega gert honum þvílíkann óleik, for crying out loud, hann fékk martröð eftir að horfa á Pétur Pan! Æi hann er með svo lítið hjarta þessi elska:-/ Vona bara að hann hafi trúað mér að þetta væri bara vatn með rauðum lit úti og sonna..!
Annars er mín bara búin snemma í vinnunni í dag og er að fara í saumó, nammi namm;oþ
2 ummæli:
He he - alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt - styttir tímann fyrir mér að sjá hvað er mikið að gera hjá þér :-)
Takk fyrir innlitið, vona að allt gangi vel hjá þér, verður gaman að fylgjast með þegar krílið kemur í heimin! ;o)
Skrifa ummæli