Ég var svo bara ekkert að skána:-/ Íbúfenið lét mig halda að mér væri ekkert rosa illt lengur en svo fattaði ég það þegar það hætti að virka, og ég er ekki að fara að komast í vinnuna í dag, er að reyna að möndla að einhver geti tekið handboltaæf. fyrir mig. Gengur ekkert sérstaklega vel þar sem ég á mjöööög bágt með að biðja fólk um greiða:-/ (Verð t.d ævinlega þakklát henni Eddu minni Garðars, að redda fyrir minni einni laugardagsæfingunni, KL.9 AÐ MORGNI TIL! Edda mín, skvassið er ennþá on, en verður kannski að bíða ööööörlítið betri tíma..!) En ég hef verið að spá hvort þetta séu einhver eftirköst snjóbrettaatviksins, þetta var nebbla ótrúlega furðulegt, var bara að stíga til hliðar í fótinn, eins og ég hef gert skrilljón sinnum, æi ég vona að þetta fari að fara, finnst ekki gaman að vera svona farlama. Dísús, mamma og pabbi eiga eitthvað heavy nuddtryllitæki, það er ábyggilega mjög töff að sjá mig handleika þetta á bakinu á mér, væri nú reyndar frekar til í að þetta væri gert með handafli en maður verður víst bara að redda sér með því sem maður hefur hverju sinni..!Dóra Stefáns ætlar að vera svo elskuleg að taka æfinguna fyrir mig, hún er ósjaldan spurð að því hvort hún og Óli Stefáns séu systkini svo að nú hefur hún tækifæri til að láta ljós sitt skína (hversu skært það mun skína veit ég hinsvegar ekki! ;oþ) En takk kærlega Dóra mín, ert að redda mér big time, var ekki alveg að sjá hvernig ég átti að reyna að keyra niðreftir..!
Jæja, ætla nú ekki að vera bara með einhvern vælupistil! Hey ég var að setja inn skoðanakönnun:oD Vissi ekki alveg hvað ég étti að spyrja þannig að ég tók bara fyrir heitasta málefni líðandi stundar, audda Silvíu Nótt! (og fyrir þá sem vaða í villu vegar, þá skrifar hún nafnið sitt með einföldu i-i, margir að reyna að breyta því og troða inn yfsiloni, sem á ekkert heima þarna) en já, mér fannst lagið hennar nú eiginlega bara best sko, lagið hjá Birgittu líka fínt, en jesús minn, eruði að grínast með hinn viðbjóðinn??? Fyrir það fyrsta þá eiga róleg lög lítið erindi í euróvisjón og hvað þá leiðinleg, róleg lög!! Það verður massa fyndið ef Silvía fer út og þýðir lagið yfir á ensku, hehe hinar þjóðirnar munu sennilega ekkert telja okkur vangefin..! Hérna getiði skrifað undir stuðningsyfirlýsingu um að hún fái að halda áfram:
http://www.petitiononline.com/mod_perl/petition-sign.cgi?Silvia
Að öðru, Mér finnst gott hjá Viggó að hætta, fáránleg gagnrýni alltaf hreint. Eins og t.d að tala strax um að hafa drullað uppá bak gegn Norðmönnum o.s.frv best að gleyma því hvað þeir voru búnir að afreka og því hafði verið búið að ganga á! En fyrir utan það þá finnst mér alveg steikt að á svona stórmóti sé spilað svona þétt, í staðinn fyrir að leyfa leikmönnum að jafna sig aðeins milli leikja og geta þá spilað af fullum krafti, t.d úrslitaleikirnir verða bara leiðinlegir því leikmenn eru að spila á tómum tanki! Viggó er bara making a statement, fólk sem hefur aldrei náð neinum árangir í neinu, þykist vita allt betur og geta gert betur, geriði þá bara betur fíbblin ykkar...
Vó ég hljóma bara grumpy! Dagslega í rúminu fer greinilega ekki vel með sálartetrið mitt! En ég er samt ekkert grumpy, voða hress og kát, en ætla að kveðja, reyna að næra mig aðeins. Spæjó...
3 ummæli:
Alveg sammála þér með Viggó...
Það er líka óþolandi hvað mikil umfjöllun um handbolta er neikvæð, og svo eru menn undrandi yfir því að enginn nennir á leiki í þessari blessuðu deild...
Samt ánægður með skyttuna hjá sport.is...;) hehe!
Allavega....
Jamm, Himmi er að standa sig hjá sportinu;o) loksins e-r að leggja sitt af mörkunum til að fá jákvæðari umfjöllun um handboltann...
P.s Óli, ég gerði eitt í dag svo að ég er komin einu skrefi nær því sem við vorum að ræða um;oþ
Áfram Silvía Nótt!!!! :O)
Skrifa ummæli