þriðjudagur, febrúar 07, 2006

RUN Forrest, RUUUUUN...


Það er alltaf líf og fjör hérna í gettóinu, núna er t.d einhver snillingurinn að sprengja flugelda, eins og hefur reyndar verið gert með reglulegu millibili frá áramótum. Nema nottla þetta séu múslímarnir í efra-Breiðholti að fremja hryðjuverk, þeir eru eitthvað uppstökkir þessa dagana. Svo var gaurinn á efri hæðinni að pissa, eðlilegt að maður sé með það í víðóma hérna í herberginu sínu! En eruði að grínast með magnið sem kom, þetta stóð yfir sennilega hátt í 3 mínútur! Thanks for sharing the details Bjarney...

Hey dí, ég var búin að lofa títtnefndri Dóru að fara með hana í smá leiðangur. Hún er að fara út í atvinnumennsku og mun spila með Malmö FF, og þar æfa þær allar með púlsmæla. Þar sem ég var með smá plögg þá fórum við saman. Og púslmælirinn sem hún ákvað að festa kaup á var geðveikur, þannig að ég ákvað að kaupa mér eitt stykki líka;oþ Og svo keypti ég líka svona jafnvægispúða, algjört möst sko, en það eina sem ég fékk að heyra í vinnunni var að ég væri NÖRD:-/ En ég skal alveg gúddera það, finnst bara alltílæ að vera nörd! Maður getur sko látið púlsmælisklukkuna búa til prógram fyrir sig, eftir því markmiðin manns eru og svo geymir það allar upplýsingar svo maður getur séð framfarirnar:oD
Veit reyndar ekki hvernig fer með hálfmaraþonið sem ég stefndi á í sumar þar sem ég ákvað að flippa og gera e-ð crazy í sumar, en ég ætla samt að stefna á það að ég muni hlaupa hálfmaraþon í lífinu, þannig að ég ætla að halda áfram að æfa undir það;o) En ykkur er sennilega slétt sama um æfingarnar mínar..! Ætla samt að lyfta í fyrramálið með Önnu Rut, taka bak og brjóst, eina gáfulega í stöðunni að taka bak þegar manni er illt í bakinu (alveg satt sko, í flestum tilfellum) Svo förum við stöllur skvass hjá Kim á fimmtudag:oD Það er reyndar líka leikur hjá Víkingi-b á fimmtudagskvöld, oh ég vona að ég geti verið með, er farið að klægja í puttana, kvíði reyndar fyrir harpix blöðrunum, en þær eru totally þess virði..! ;oþ

Farin...

Engin ummæli: