þriðjudagur, febrúar 14, 2006

bleh

Þá er Valentínusardagurinn að kveldi kominn, ég tók nottla þátt í honum af öllu afli. Eða ekki..! Eða jú, fékk reyndar eitt sætt sms:oD Held ég hafi samt aldrei haldið uppá valentínusardag (líka soldið erfitt að halda uppá hann einn! hehe), er t.d ekki beint hjarta-/blómatýpan:-/ frekar svona bangsa, og e-ð krúttlegt, mjöööög auðvelt að vinna mig á sitt band með einhverju mjúku og loðnu! Samt ekki loðinni bumbu...

Dísús, ég er ömurleg vinkona:-/ Gillz gleymdi msn-inu sínu opnu í vinnutölvunni, ég og Orri sáum okkur nottla leik á borði! Shit hvað okkur fannst við fyndin! Byrjuðum á að breyta nafninu hans í "leðurhomminn" og svo undirlínan:"bdsm.is, er online núna..." Breyttum því svo í "tremma g%aður" (ritskoðað útaf fólkinu undir 18 sem rambar hérna inn!) og þá byrjuðu smástelpurnar að poppa upp! Ég hafði reyndar ekki samvisku í að fara að rugla í þeim:-/(en orri hafði það! bwuahahaa) Ég var rosa mikill prakkari(!) og var bara fyndin við Magna, spurði (nottla sem leðurhomminn) hvort hann vildi r/&a?? Geðveikt villt! hehe, hann fattaði eftir sekúndu hver þessi "fyndna" var:-/ (æi sorry Egill, þetta var bara OF freistandi!! :-/ þú veist ég elska þig..! ;oþ)

Ooooh argh, tapaði feitt fyrir Önnu Rut í skvassinu í dag:o( Verð yfirleitt ekki tapsár, en í dag var ekki hægt að tala við mig í ca. hálftíma á eftir! Við náðum reyndar upp ágætis spili, en ég var að klúðra svo mikið með klaufaskap að mig langaði í alvörunni að stappa niður fótum og grenja af pirringi! (deja vu úr helv... snjóbrettaferðinni!) en mar er nottla orðinn 27 ára, farinn að kunna að hemja sig..! *hóst* ;oþ

Sjæt, er gegt sybbin, verð að fara að lúlla. Góða nótt....

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég fékk engin blóm, ekkert súkkulaði og ekki einu sinni sms.. hvenær er dagur einstæðinganna eiginlega??? :O)

BWAHAHAHAH fyndið með Gillz :Þ

Nafnlaus sagði...

Iss, þú er nú lélegur samverkamaður, kjaftar frá manni bara um leið!! Iss segi ég bara....
KV, þessi samviskulausi.....

bjarneybje sagði...

Hahahah, sorry! :-/ Mér fannst þetta bara of fyndið til að þegja yfir..! ;oþ