þriðjudagur, febrúar 07, 2006

klukkiklukk



Eins og sést á myndinni þá erum ég og Svava ansi nánar vinkonur! Þarna er ég t.d að maka brúnkukremi á rassinn á henni! Eðlilegt..! ;oþ

En já, ástæðan fyrir þessari myndbirtingu er sú að þessi umrædda Svava klukkaði mig, enn eitt klukkæðið, en ég að sjálfsögðu skorast ekki undan. Enda bara lítið klukk að þessu sinni, bara að telja upp 5 ávana...

Here goes:
1.Óskar Dagur, Sindri og Andri. Litlu systrasynir mínir sem ég VERÐ að hitta reglulega. Fæ fráhvarfseinkenni ef ég fæ ekki reglulegt knús frá þeim! Reyndar búa Sindri og Andri í Grindavík þannig að ég fæ ekki að hitta þá jafnoft og ég vildi:-/

2.Líkamsrækt, verð ómöguleg ef ég hreyfi mig ekki í einhvern tímann. Náttúrulega geðlyfið mitt!

3.Allir vinir mínir sem ég get ómögulega verið án (þó ég sé ekki nógu dugleg að umgangast fólk utan vinnutíma, þá er samt alltaf ómetanlegt að vita að maður eigi endalaust trausta vini, sem fyrirgefa manni að fara snemma að sofa og sonna! ;oþ), veit ekki hvar ég væri í lífinu ef ég hefði ekki verið þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga bestu vini í heiminum!

4.VATN, jaðrar meirsegja við að ég drekki of mikið af því, tíðar klósettferðir geta truflað daglegt líf!

5.Er að komast að því núna að ég er að verða háð handboltastelpunum mínum, er orðin ótrúlega eigingjörn á þær og höndla varla tilhugsunina um að einhver annar taki við þeim, þó það verði sennilega raunin ef planið mitt gengur upp:'(

Uh já, þetta er sennilega það sem mér dettur í hug núna, en kannski var verið að meina svona skrýtna ávana? Eins og t.d að klæða sig alltaf í hægri skóinn fyrst, eða slökkva og kveikja ljósin minnst 10 sinnum áður en maður fer út úr húsi o.s.frv. (sem er nú reyndar frekar árátta en ávani!) En ég held ég sé samt ekki með einhverja skrýtna ávana (eða áráttur), þannig að ég læt bara það sem er komið duga...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hey nörri, spurning um að kenna mér á púlsmælinn...ég er ekki viss um að ég skilji þessa tækni ;) einkaþjálfarastéttin líður undir lok ef allir fá sér svona púlsmæla...án djóks, búa til prógröm og alles...alveg ótrúlegt ;)

bjarneybje sagði...

jamm, er strax byrjuð að nota hann, snilldargræja!! ;o)