
Jæja, þá er bloggpásan búin, stóð ekki jafn lengi yfir og ég reiknaði með en ég notaði helgina vel til að komast að niðurstöðu í líf mitt og ég er bara nokkuð sátt við útkomuna. Eða eiginlega bara mjög ánægð, spennandi tímar framundan:oD
En dísús hvað ég er mikill lúði! Fór í skvass með Önnu Rut í morgun, hitaði ekkert upp og mætti bara í salinn, tók reyndar nokkur upphitunarhögg og þannig en ekkert almennilega upphitun. Svo sem ekkert í frásögur færandi, hef oft gert það áður, en eftir ca.5 mínútna leik þá steig ég niður í hægri fótinn og fékk þennann líka nístandi sársauka í bakið/mjömina (við spjaldliðinn sem sagt) og leiðni niður í fót. Eðlilegt, gat varla stigið í fótinn, en það var verst að beygja sig niður og anda (sem sagt alveg í toppmálum!) og bílferðin heim var terrible, var svo massa vont að beygja sig og ég sat nottla “beygð” undir stýri og gott ef ég þurfti ekki að halda aftur af einu tári eða svo! :-/ Þannig að ég er bara rúmföst eins og staðan er núna, náði samt að fara aðeins á klóið og ég held þetta sé að skána, allavegna ekki alveg jafn mikill verkur, nema nottla að það sé íbúfenið að virka, gæti verið...
Vona þó að þetta sé ekki glöggt merki þess að ég sé að eldast:-/ Vona að þetta sé frekar bara til að kenna mér að hita almennilega upp áður en ég fer að rembast í skvasssaænum..!
Hef fengið nokkur komment á myndina sem fylgir síðustu færslu, misfalleg ummæli að vísu! Flestum finnst þetta move með augað þó impressive, en einnig hef ég fengið að heyra lýsingar eins og “hryllingur” “lítur út eins og slys” en reyndar líka “krúttileg” (það kom að vísu frá mér sjálfri en ég tel það samt með!) En í tilefni þess hversu mikill lúði ég er í dag með þessa ellimannaverki þá ákvað ég að skella inn annarri sem lýsir sálarástandi mín vel.
Þar til næst, hafið það gott;o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli