sunnudagur, febrúar 12, 2006

jæks

Vó, ég vaknaði kl.12:45! Held það séu ár og aldir síðan ég hef sofið svona lengi frameftir! Ákvað að leyfa mér að sofa út en ég bjóst við að ég myndi sprellvakna um 9-10 eins og venjan er þegar ég sef vekjaraklukkulaust, vaknaði reyndar aðeins um 6-leytið (undirmeðvitundin eitthvað að sprella!) en svo svaf ég bara eins og hænuungi framyfir hádegi..! Var reyndar að passa til um 01:30, en það er heldur ekki vanalegt hjá mér að vaka svona lengi, jafn sorglegt og það kannski hljómar:-/

En vá hvað þetta var samt gaman, þeir eru svoooooo sætir þessi kríli! Eru tvíeggja og alveg ólíkir as can be! Mér finnst líka skemmtilegast í heimi þegar það er einhver óróleiki í gangi og ég næ að svæfa:oD Ok, kannski soldið furðulegt áhugamál, en ég er bara algjör sökker fyrir svona litlum mannverum, nema þegar þau prumpa, magnað hversu mikil og úldin prumpufýla getur komið úr svona litlum búkum..!

Annars bara skemmtilegur dagur framundan, leikur með V+iking-b kl.17 og svo ætla ég í skvass með Önnu Rut kl.19, verð allavegna vel heit;o)
Dísús, veit ekki hvort ég eigi að fara að hafa áhyggjur af þessari þróun, var búin að ákveða að hvíla í gær, lappirnar hálf súrar eftir átökin seinnipart vikunnar, en einn kúnninn minn bað mig að koma í skvass á lau. (sá sami og bombaði í andlitið á mér ekki alls fyrir löngu!) og ég gat nottla ekki skorast undan, en ég fékk geðveikt samviskubit, eins og ég væri pínu að halda framhjá Önnu pönnu:-/
hehe en þetta gekk fínt, var með nýja púlsmælinn minn og hann er með kaloríumæli og hann sagði að ég hefði brennt um 700 hitaein. þannig að ég sá mér leik á borði og rukkaði Dóru litlu um ísbíltúrinn okkar (kom þannig út á sléttu;oþ) eðlilegt samt að ísbíltúr standi yfir í 3 tíma! Jæja, svona er það bara þegar 2 málglaðar manneskjur koma saman...

Nenniggi meir, njótið dagsins, veit að það ætla ég að gera á þessum uppáhaldsdegi vikunnar:oD

3 ummæli:

bjarneybje sagði...

það var reyndar í fyrradag, en takk kærlega;o)

Sunnudagar finnst mér æði, get gert endalaust af hlutum og hef engum skyldum að gegna, get meirsegja lagt mig um miðjan dag ef ég vil:oD

Nafnlaus sagði...

Hey svefnpurka, þú verður náttla líka að taka með í reikninginn öllum þeim hitaeiningunum sem við brenndum með því að masa í 3 tíma;)

bjarneybje sagði...

jamm, þannig réttlætti ég nammiátið..! ;oþ