Ég var ekkert smá hamingjusöm þegar ég kom heim áðan, það er búið að setja stórt trampólín útí garð!! :oD Þarf núna að fá Óskar Dag lánaðann í heimsókn og draga hann með mér út í garð, ekki það að hann fái að hoppa eitthvað, það lúkkar bara betur heldur en að vera ein útí garði í fíling! ;oþ
Svo var ég reyndar ekki jafn hamingjusöm þegar ég lenti í fluguárás! Var að vaska upp í rólegheitum þegar þessi líka risafeita húsfluga æðir í áttina að mér, en ég með uppþvottaburstann að vopni náði að verjast. Öskraði reyndar pínu smá, það hefur sennilega verið það frekar en uppþvottaburstinn sem bægði hættunni frá:-/ Hins vegar það næsta sem ég sé er mútta mætt með hárspreyið, ætlar aldeilis að láta til skarar skríða! Ég reyndi nú að tala um fyrir henni, það væri nú kannski óþarfi að DREPA fluguna! (geri allavegna ráð fyrir að hárspreyið hafi ekki verið ætlað í flugu-túberingu!) En mamma í vígahug lætur nú ekki tala um fyrir sér! Hún leit á mig og hvæsti:"BARA húsfluga?? Það er nú mesta sýkingahættan af þeim!" Oh well, allur er varinn góður nú á tímum fuglaflensu og eyrnabólgu...
Nenniggi meir, ætla að reyna að fara að sofa, hey ég gleymdi að segja ykkur að ég sef eins og hænuungi eftir að ég lét laga nebbann:oD Ég og Hafrún komumst að þeirri niðurstöðu að sennilega hefði lokaða nösin virkað soldið eins og kæfisvefn og því hef ég þjáðst af krónískum svefntruflunum síðastliðin 15 ár:-/ en jæja, vonandi fæ ég allan þann svefn sem ég þarf á að halda í framtíðinni, hef reyndar some catching up to do, en ég hlýt að koma út á sléttu einn góðann veðurdag;o)
Góða nótt hænsin mín...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli