Hahaha, dísús ég hélt að Gillz væri að ljúga feitt að mér þegar hann tjáði mér að það kæmi mynd af mér í "Biblíu fallega fólksins" BUT NO, hann var bara ekkert neitt að ljúga! En reyndar er myndin bara lítil þannig að sennilega þekkist ég ekki (myndi smella þessari mynd hérna ef það myndi ekki lúkka sem einum of mikil sjálfumgleði!! Er sko bara í bikiníi..!) en það hlýtur nú samt að teljast hrós að koma í "Biblíu FALLEGA fólksins"! hehe, ekkert nema eðlilegt bara...
Er sko bara að skrifa e-ð því ég er að bíða eftir að kaffibollinn hætti að virka! Var nebbla að koma heim úr útskriftarveislunni hjá Heru, stelpan orðin verkfræðingur, það er sko fullorðins! Við sungum lag til heiðurs henni, og ég ætlaði að reyna að syngja með(þrátt fyrir gígantískan skort á sönghæfileikum! Næ ekki einu sinni að halda lagi í ammælissöngnum:-/) en svo stóð ég aftast, kom ekki upp orði og roðnaði bara:-/ faldi svo bara munninn á mér bakvið öxlina á Kollu svo enginn sæi að ég var algjörlega óvirk í þessu mikla atriði!
Reyndar var nú líka pælingin að ég væri eiginlega bara andlit hópsins útá við, ég meina, ekki eru þær í Bilblíu fallega fólksins..! ;oþ
Annars er þjálfaranámskeiðið áfram á morgun, frá 9-16, meiriháttar að taka bara allann sunnudaginn í þetta, en svona námskeið eru reyndar afar hressandi.
Hehe, Magni og "Gillzenegger" (í mínum augum er hann nú samt bara Egill) tóku handboltaæfinguna fyrir mig í morgun og það vakti heldur betur lukku! Gillz aðeins cocky á leiðinni niðreftir:"Er on my way, greiddi mér meirsegja, það verður allt VITLAUST!" Fékk svo sms 5 mín. eftir að æf. lauk:"Þessar stelpur eru glæpamenn!" ég á miðju námskeiði og DÓ úr hlátri! :-/ spurði svo hvað hefði eiginlega gerst, og þá kom:"Þær sögðu mér að fara í ljós og köstuðu svo bolta í punginn á mér!" Ég sendi tilbaka að þessar stelpur væru algjörir snillingar..! ;oþ En þær voru rosa ánægðar með þetta allt saman, hann gaf þeim meirsegja 3 bækur, og svo fannst mér líka afskaplega sætt af þeim að vakna á laugardagsmorgni (æfingin byrjar kl.9) til að taka æfingu fyrir mig! Takk guys;o* Reyndar var ég mest stolt af þeim þegar Magni sagði að þær væru eins og litlir hermenn! (Hehe, þær eru svo vel uppaldar nebbla! ;o))
Er orðin sybbin, skil ekki hvernig ég næ að blaðra svona mikið, hafði eiginlega ekki neitt að segja þegar ég ákvað að hripa niður smá texta! magnaður andskoti...
Anyways, góða nótt
6 ummæli:
Þú ert virkilega bara lítill sætur snúður undir öllu þessu :)
Öh, undir öllu HVERJU? Ertu að gefa í skyn að ég sé feit or something?? Þá undir allri mörinni? Hvað áttu eiginlega við drengur?!
hehe gegt paranoid, en þetta "undir öllu þessu" er ekki alveg að vekja lukku..!
Sæl Bjarney ég hef heyrt að þú sért besti einkaþjálfarinn í bænum :) geturðu nokkuð sett inná síðuna þína hvað má borða þegar maður fer í fitness cut. ?
Hahaha, það er ekkert verið að spara hrósið!! hehe, en meðmælin allavegna góð;oþ
Skal henda inn fitness matseðli við tækifæri, set hann inná æfinga-og matardagbókina, reyni að gera það í kvöld. Svo er líka mjög gott að kaupa fitnessblöð, Oxygen er í uppáhaldi hjá mér, en það er kvk blað, veit ekkert hvort þú ert. Enþar eru oft gefnir upp matseðlar.
Þetta er samt ekert mál og ég fer í málið við fyrsta tækifæri;o)
Var nú bara að meina undir öllu þessu attitude-i. Alltaf jafn fit og flott, þú veist það!
hehe, vona að ég hafi ekki e-ð attitude problem!! :-/ En sætur snúður er samt fallega sagt, takk takk;o)
Skrifa ummæli