fimmtudagur, febrúar 09, 2006

tíminn líður hratt..!


Úff eftir ca.20 mínútur eru nákvæmlega 27 ár síðan ég lagði leið mína útúr leginu á móður minni! (fæddist 10.feb, kl.00:07) Hef aldrei upplifað svona skrýtna tilfinningu gagnvart aldrinum, sennilega af því að þegar maður er orðinn 27 ára þá er maður orðinn fullorðinn og mér líður ekkert eins og ég sé fullorðin:-/ Sem er nottla jákvætt að vissu leyti, og svo er nottla töluvert betra að verða 27 ára en að verða það ekki! Ekki eins og það sé sjálfgefið...

Ákvað að smella inn einni mynd af mér frá því í æsku, og svo er hérna þroskasagan mín sem ég gerði einhvern tímann í skólanum, mjöööög fróðleg lesning;oÞ En eins og þið sjáið á myndinni þá hafa þessar kinnar fylgt mér alla tíð, þannig að ég mun halda því fram að bollukinnarnar mínar séu genetískar!! Hins vegar nokkuð ljóst að ég hef líka frá fyrstu tíð verið soddann krúúúúútt..! humm, kannski ekki töff að vera 27 ára krútt, en ég get víst lítið að því gert, genetískt remember! ;oþ

Jæja, nenniggi að skrifa um hrukkur og æðahnúta sem fylgja víst hækkandi aldri:-/ Fór og spilaði áðan með Víkingi-b, rúlluðum yfir HK-b, eyddi reyndar töluverðum tíma á bekknum þar sem ég hef ekki mætt á æfingu síðan í október or something, setti samt 3 slummur. Kellan er ennþá með touchið;o) Ætla samt að fara að mæta aftur á æfingar, hundleiðinlegt að sitja á tréverkinu:o( Hey vó, ég fékk tvisvar 2 mínútur! Og í bæði skiptin mjög óverðskuldað! (er ekki hlutdræg!) Hefði verið mjög töff að fá rautt í leik í 2.deildinni..!

En já, ég býst ekki við að sofna alveg strax, tekur alltaf smá tíma að ná sér niður eftir leiki, voltarenið líka aðeins að missa virknina og ég held að ég sé ekki aaaaalveg jafn nýsleginn túskildingur og ég hélt á meðan það virkaði:-/ En ég gat samt líka verið í skvassi í dag, fyrst í 45 mín. kennslu hjá Kim Magnúsi og svo spiluðum við í korter, ég var reyndar soldið útá túni en ég fann samt eiginlega ekkert í bakinu, verð orðin góð á morgun...

Ætla að reyna við svefninn, sé í hillingum snúðinn sem ég ætla að fá mér í tilefni dagsins á morgun, bara lítinn samt, held ég sé að fitna:-/ þarf að fara að skrifa aftur svona æfinga-og matardagbók sem liggur fyrir allra augum til að stöðva útbreiðsluna á mér! Er samt ekki búin að borða snúð í margar vikur, magnaður andskoti, veit ekki hvað kom yfir mig! Skyndilega hætti ég bara að halda snúðadagana heilaga, þarf að byrja á þeirri einstaklega góðu hefð aftur..! ;oþ

Farin að reyna að lúlla, góða nótt....

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn elskan :* ég veit að ég er búin að óska þér til hamingju!!! vildi bara gera það hér líka ;)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið!
Bryndís Þóra

Nafnlaus sagði...

Til lukku með daginn!!

Njóttu vel og reyndu að forðast öll vandræðaleg móment... þú ert jú orðin 27 ára!! hahahaha!!
Gaman að því, ég er 2 árum yngir en þú.... Nanananaaaaanaa!!!:)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn *koss*

Kv,
Fríða

Sveifin... sagði...

Happy birthday to you.. krúsí smúsí og trilljón kossar ;)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn, litli snúður! :)

Inga Lilý sagði...

Innilega til hamingju með daginn!! Vona að þú hafir fengið þér STÓRAN snúð með miklu súkkulaði! :)

Kv.
Inga L

Eva sagði...

Hjartanlega til hamingju með daginn skvísa!! Njóttu hans í botn, afmælisdagurinn á alltaf að vera sérstakur, sama hversu gamall maður er eða hvað maður er að gera á daginn!!
Knus!

Nafnlaus sagði...

Hahaha, gamla kempan með tvisvar tvær mínútur! púlsinn alveg að rjúka upp..;) en já, heilagir snúðadagar er brilliant!