fimmtudagur, janúar 22, 2004

Úff mar...

Haldiði að ég hafi ekki sofið yfir mig í morgun:o( Það eru ár og aldir síðan það hefur gerst! Ekki mjög gaman að klikka á einhverjum klukkan 6:30 að morgni til! En sem betur fer er ég með svo yndislega kúnna að mér var fyrirgefið. En allavegna ömurleg byrjun á deginum.
Kristín nuddarinn minn náði þó að nudda í mig soldið góðu skapi (ég ætla ekki að gefa ykkur númerið hennar af því ég vil ekki að þið farið að einoka hana og hún hætti að hafa tíma fyrir mig!) híhí, bara djók. þið megið alveg fá númerið hennar ef þið viljið, mér finnst hún allavegna æði. þið biðjið mig þá bara um það....

Oh well, er farin að láta einhverjar saklausar sálir svitna...

Engin ummæli: