laugardagur, janúar 24, 2004

Skrýtið?

(Sorry Himmi, ég copy/paste-aði brandarann af blogginu þínu;o))
Finnst þetta samt alveg þess virði að hugsa um..!

Ef maður tekur rollu, skellir afturfótum hennar ofaní stígvélin sín og ríður henni, þá er maður kallaður Nonni me me (rolluríðari), alla ævi, hvar sem maður birtist.

En ef maður drepur rollu, brennir á henni andlitið, sýður andlitið í heitu vatni í nokkrar klukkustundir, hellir hvítri sósu yfir, sýgur úr henni
augun og sker úr henni tunguna, nagar af henni kjálkavöðvana og etur þetta allt saman með grænum baunum, þá er maður bara Íslendingur í svaka stuði á þorrablóti!

(og enginn spyr rolluna hvort henni fannst betra…)


Þetta er algjör snilld, líka í beinu framhaldi af masókistaþorramatsátpistlinum. Var einmitt að horfa á sviðnu kindaandlitin á borðinu áðan og ég skil ekki hvernig fólk hefur lyst á að setja þetta upp í sig!

Það væri samt ábyggilega tilvalið að búa til svona svið úr mér, ég er með svo miklar bollukinnar að ég ein væri nóg fyrir 6 manna fjölskyldu í tvær máltíðir. (ég er samt með gott DNA)

Engin ummæli: