fimmtudagur, janúar 22, 2004

Nú jæja...

Ég þarf víst að draga uppsögnina tilbaka. Arnar yfir-kroppatemjarinn setti mér stólinn fyrir dyrnar og sagði að annaðhvort myndi ég halda áfram að blogga eða að hann myndi drekkja Poppa.

Talandi um Poppa, megrunin hans er aaaaaaðeins að fara í skapið á honum, ég held hann yrði bara feginn að fá að drekka. Hann er sífellt að gefa mér illt auga (sem betur fer er hann bara með eitt auga, myndi ekki höndla að fá bæði í einu!) kannski ég fari að auka matarskammtinn hans, eða jafnvel byrji á því að gefa honum að borða. Held ég hafi tekið megrunina hans of bókstaflega.

En þið losnið víst ekki við mig alveg strax, legg heilann í bleyti og reyni að finna upp á einhverju sniðugu til að blogga um.



Engin ummæli: