Ha ha ha, gaman að vita að e-r nennir að lesa bullið mitt. Enn skemmtilegra að fá svona komment, endilega haldið áfram;o)
Ég var samt ekkert að grínast með að það voru konur inn á femin.is að tala um að skrúbba af sér fituna!! Ja hérna, ef þetta væri svona auðvelt þá væri væntanlega ekki til offita í heiminum! Bara *skrúbb* *skrúbb* og fitan farin! Eru engin takmörk fyrir hvað fólk getur verið greindarskert án þess að vera löglega úrskurðað þroskaheft? (með fullri virðingu fyrir þroskaheftum.)
Annars er það að frétta af megruninni minni og Poppa að hann er aðeins farinn að taka í lóðin og við erum strax farin að sjá heilmikinn mun, sundmaginn orðinn stinnari og uggarnir að massast heilmikið. Enn og aftur sannast að að lóðaþjálfun er árangursríkasta þjálfunin (minni aftur á símanr. mitt.698-4120)
Hey common, þetta er bloggið mitt. Ég má alveg lauma inn svona cheap plöggi!;o)
Ég ætti kannski að prófa að skrúbba Poppa og sjá hvað gerist...
Ég er komin með ritstíflu:o(
Ætla að reyna að fara að lúlla og hvíla kvarnirnar. Kem vonandi fersk inn á morgun.
P.s Hafrún ef þú lest þetta þá er shout outið þitt búið að vera bilað! Helv... klink fjölskyldan er ekki að gera gott mót. Ég er sko alveg búin að vera að reyna að shout outa á femínista greinina sem mér fannst brilliant.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli