miðvikudagur, janúar 14, 2004

Mér finnst alveg magnað að sumt fólk getur skrifað á hverjum degi og jafnvel oft á dag á bloggið sitt. Ég er alveg hreint í vandræðum! Veit ekki hverju ég á að deila með ykkur (öllum!) nema að fjandans bíllinn minn bræddi úr sér:( kostar ekkinema ca. 200 þús kall að gera viða hann. En hann Stebbi bíló ætlar að vera svo indæll að hjálpa mér, kosturinn við það er að ég fæ að borga í blíðu. Ok, reyndar ekki en það er vert að athuga það..!

Já, ekki má nú gleyma að nú er Idolið í algleymingi og ég held svei mér þá að Kalli frændi haf´etta! Öll fjölskyldan er að spriiiiiiinga úr stolti og meirsegja ætla fjölskyldumeðlimir hans frá Norge að koma á lokakvöldið. Mar verður nú kannski að kíkja á skrallið með norsku lukkutröllunum (vona allavegna Kalla vegna að þau séu ekki ólukkutröll.)
En Kalli hlýtur bara að vinn´edda. Hann er einfaldlega langbestur (og ég þvertek fyrir að ég sé hlutdræg!)

Ætla að fara að lúlla, reyna að hvíla sellurnar svo að ég mæti fersk í bloggið mitt á morgun. Þar til næst....


Engin ummæli: