Æ mér er svo sem alveg sama hvort e-r er að skoðetta. Þið þurfið ekkert að commenta, ég geri það bara sjálf: "frábært framtak hjá þér Bjarney, einmitt það sem heiminn vantaði. Enn einn blogglúðinn."
"Rosa fín síða hjá þér Bjarney, ég vildi óska að ég hefði hugmyndaflugið í að skrifa svona blogg."
"Hey, það er miklu skemmtilegra að lesa bloggið þitt en innleggin á femin.is þar sem kellingarnar ætla að skrúbba af sér fituna."
Jæja, alltaf gaman að fá svona feedback (jafnvel þó það sé frá sjálfri mér) ágætt að vita að e-r hefur ánægju af skrifunum mínum.
PopEye er kominn í megrun, hann er að springa krakkinn! Vil ekki að það fari fyrir honum eins og síðasta gullfiski sem ég átti. Ég átti hann í ca.ár og af þeim tíma synti hann á hvolfi í um 8 mán. Ég held að sundmaginn í honum hafi sprungið. Hann sneri sér samt alltaf við ef ég potaði í hann. Anyways, Poppi er byrjaður í aðhaldi.
Ég líka þannig að ég er farin á æfingu.
bless í bili...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli