Ooh, ég er svooooooo ánægð! Kalli hafði þetta! Enda var hann langbestur (og enn og aftur neita ég fyrir að vera hlutdræg!) En hvað var með jakkann? Ég var næstum því búin að afneita skyldleika okkar þegar hann mætti á sviðið, en fyrst þetta var áskorun þá er ég bara stolt af kallinum (og svo er þetta líka alveg e-ð sem ég myndi líka gera ef ég yrði mönuð;o))
Ef ég væri eðlileg, einhleyp, 25 ára kvk þá færi ég núna á djammið að fagna því að ég beri sama DNA og Kalli Bjarni en þar sem því fer fjarri þá ætla ég bara að fara að lúlla núna til að geta farið á æfingu í fyrramálið og mætt svo fersk í vinnuna kl.9 (ef ég verð ekki snjóuð inni:-/)
Talandi um að eignast líf, er e-r sem getur bjargað sálu minni?
Æ, þetta er kannski bara ágætt. Þeir sem þekkja mig vita að ég tók út djammskammt fyrir heila mannsævi (ca.7 hundsævir) á 5 árum þannig að ég held ég láti það bara gott heita og hafi tappan sem lengst í bokkunni! (ammælið mitt verður að sjálfsögðu unandtekningin sem sannar regluna (og reglan er sú að ég eigi helst ekki að fá mér í annann fótinn!))
Oh well er farin að fá mér dúfublund svo að ég fái ekki ljótuna eins slúbbbertinn minn hún Svava er að reyna að dreifa út um allan bæ sem viðhengi með tölvupósti. Þannig að ef maður hangir í tölvunni framyfir miðnætti þá er mjöööööög líklegt að maður fái ljótuna en maður fattar það ekki fyrr en mar vaknar daginn eftir og sér svefnpokana undir augunum (ég tala af biturri reynslu!)
Góða nótt...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli