Hversu asnalegur er maður þegar maður er í brennslunni sinni og er að horfa á sjónvarpið í mestu makindum og allt í einu kemur e-ð rosalega fyndið og maður þarf að berjast við að halda inní sér hlátrinum?! Ég lenti í'essu í morgun, Sveppi í 70 mín. var í áskorun um að fylla naríurnar sínar af ísmolum, það var bara fyndið! Sérstaklega þega heilt klakafjall ákvað að troða sér út um typpagatið! (hann teipaði fyrir skálmarnar svo það færi ekki þar út) Ég þurfti svoooo mikið að hlæja, hélt alveg fyrir munninn (af því að það er ábyggilega miklu minna áberandi en að sitja á hjólinu sínu með mongó smælið!) En þetta gerði samt morgunbrennsluna mína bærilegri....
Núna er bara hálftími í að idolið byrji, ef Kalli Bjarni vinnur ekki þá er það pjúra skandall! Hann vinnur allavegna ef verið er að kjósa hæfileika. Það gæti samt allt eins farið svo að Jón vinni út á mongó smælið sitt (við eigum það allavegna sameiginlegt) eða lukkutröllið (Anna Katrín) út á SJARMANN!
jæja, krossa puttana og vona það besta.
læt þetta nægja í bili, kem pottþétt aftur eftir idolið í gleðikasti eða hágrenjandi. Eða bara bæði, mér er sagt að það sé betra.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli