miðvikudagur, janúar 21, 2004

Helv.... vigtin var.....

...biluð í morgun þegar ég steig á hana fyrst (eða svona eiginlega biluð, það var e-r motta undir henni eða e-ð, þannig að hún sýndi allt of þungt! *pirr* *pirr* Ég eyddi sem sagt ca. 4 klukkutímum í angist og örvæntingu í morgun að óþörfu! Eða allavegna ef hún var ekki biluð þá er ég heimsins besti grennari og setti nýtt heimsmet með að léttast um 3.2 kg. á 4 klukkustundum! (tek það fram að ég nota alltaf sömu vigtina, glæný, ógeðslega flott, gler digital vigt frá Elko.)

En nú getum við öll tekið gleði okkar á ný fyrst að ég er ekki að fitna:o) *pjúff mar*

Hins vegar er það nú önnur saga með hann Poppa, setti hann á vigtina í morgun og hann er búinn að bæta á sig 1.7 grammi (sem er mjöööööög mikið á gullfiskakvarða) Gæti reyndar verið bjúgur í kallinum, ætla að prófa að lauma einni vatnslosandi töflu í búrið hjá honum og athuga hvort það hjálpi ekki e-ð.

Læt ykkur vita gang mála, farið ekki langt. (kem reyndar ekki aftur fyrr en á morgun en þið getið þá bara dundað ykkur í kapli eða e-ð þangað til)

Engin ummæli: