kl.5:45, spratt á fætur, klæddi mig í joggarann og tók nokkur létt hopp að hætti íþróttaálfsins. Ok, reyndar ekki alveg rétt, klukkan hringdi kl.5:45 en ég drattaðist ekki á fætur fyrr en kl.6:10. Hengslaðist fram á bað, skvetti úr henni, steig á vigtina og fór í fýlu. Klæddi mig í æfingadressið og lagði af stað niðrí Gym80 til að fara í spinning hjá Gunnþóri (a.k.a Dýri.) Hann klikkar ekki frekar en fyrri daginn og lundin var töluvert léttari þegar ég brunaði heim aftur með Britney Spears og Westlife í botni í bílnum (var ég ekki búin að segja að ég væri mesti píkupopparinn?!)
Allavegna nokkuð góð byrjun á deginum, þó að byrjunarbyrjunin hafi ekki verið góð (þ.e.a.s þegar ég steig á vigtina:-/)
Öpppdeita ykkur síðar í dag ef e-ð merkilegt (eða ómerkilegt) gerist. Stóra spurningin í dag, sem og aðra daga er: "er þetta dagurinn sem Bjarney eignast líf?"
Ef þetta er ekki sá dagur þá mun ég síðar í dag fræða ykkur um muninn á mettuðum, einómettuðum, fjölómettuðum og síðast en ekki síst transómettuðum fitusýrum. Stay tuned....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli