Ég hvet ykkur eindregið til að kíkja yfir á bloggið hennar Hafrúnar. Snilldargrein um femínista og þessa endalausu forræðishyggju íslenskra stjórnvalda.
Talandi um femínista. Hvað ætli þeim finnist um brasilískt vax? Humm, væri fróðlegt að fá þeirra skoðun á því. Fyrir þá sem ekki vita hvað brasilískt vax er, þá er það þegar öll kynhár (eða píkuhár á góðri íslensku) kvenna er fjarlægð með heitu vaxi og strimlum. Þá erum við að tala um að ÖLL hárin eru fjarlægð...
Svo ég tali enn og aftur um hvað ég er asnaleg alltaf í brennslunni minni. Í dag var ég á hlaupabrettinu að labba í hægðum mínum (gefið ykkur andartak og hugsið um þetta orðatiltæki, hver labbar í hægðum sínum?! Mínar enda allavegna yfirleitt í klóstinu) Anyways, var að labba í rólegheitunum og var að horfa á handbolta í sjónvarpinu. Þar sem ég myndi gera ansi margt fyrir að fá að spila handbolta aftur þá lifði ég mig ansi mikið inní leikinn. Jafnvægisskynið barasta fór! Ég var byrjuð að taka gabbhreyfingar og allt á færibandinu! Já ég í brennslu er efni í góða grínmynd eða allvegna stuttmynd...
Læt þetta gott heita í bili, þarf að fara að lúlla áður en ljótan nær yfirhöndinni..! Góða nótt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli