...útí Snorra:-/ Hann skrifar á síðunni sinni um nýja stórveldið í Sporthús-körfuboltanum (völlurinn er ca.2x2m í flatarmál) en hvergi kem ég við sögu!
Sannleikurinn er sá að í gær voru þau skötuhjú (Hafrún&Snorri) í körfubolta einu sinni sem oftar.
Ég fer inn til að hitta Hafrúnu og fá öppdeit um það helsta sem er að gerast í slúðrinu (þeir sem þekkja Hafrúnu vita hvað ég á við, hehe) ég sem sagt ákvað að sýna hvernig á að ger'etta í leiðinni (þ.e kenna þeim leikinn "hvernig á EKKI að hitta einu sinni ofan í körfuna í 17 tilraunum") Nema að ástæða þess að ég ákvað að leggja skóna á hilluna í gær er sú að í síðasta skotinu (skil enn ekki af hverju boltinn var tekinn af mér!) þá tók ég þennan líka þrumufleyg beint út um dyrnar (það er engin hurð á salnum), boltinn fór fram á gang, einu sinni í jörðina og *whoom* rétt straukst við hausinn á konu sem var að labba famhjá salnum í mesta sakleysi sínu. Ég fékk smá sjokk en lympaðist svo eiginlega niður af hlátri en ég held að allir hafi skellt skuldinni á Snorra því hann fór fram að sækja boltann...
Dæmi nú hver fyrir sig um hver það var sem átti stórleik! Huh!
En ég vil taka það fram að ég hef ákveðið að hætta öllum afskiptum af körfubolta í framtíðinni, held það sé öllum fyrir bestu...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli