Já ég held það verði bara að fara að koma að því. Ég verð að fara að leggja mitt af mörkunum til að gera heiminn að betri stað til að búa í. Og hvernig geri ég það? Nú auðvitað með því að eignast afkvæmi. Lítil Bjarney eða lítill Bjarni myndi færa sólheimabros yfir andlit okkar allra. Eina vandamálið er að ég get ekki eingetið svona kríli (Kári neitaði að klóna mig og kom með einhver fáránleg rök, eins og t.d að ein ég væri meira en nóg o.s.frv.) Ég neita að hlusta á svona rökleysu! Anyways, ég er búin að reyna að dáleiða mig til að verða ólétt, búin að fara á samkomu hjá sértrúarsöfnuði og meira segja gekk svo langt að fremja gjörning með dauðri hænu (ég drap hana samt ekki sjálf!) En allt kemur fyrir ekki, mín ekki orðin ólétt.
Því hef ég ákveðið að auglýsa eftir góðu DNA til að koma til móts við mig. Engar sérstakar kröfur gerðar nema að hann verður að vera ca.180 sm á hæð, dökkhærður, frekar massaður/ eða með háa greindarvísitölu (maður getur víst ekki fengið hvorutveggja), góður í íþróttum og vel tenntur.
Þar hafiði það, ef þið viljið taka þátt í að fegra heiminn og teljið ykkur hafa nógu gott DNA til að koma til móts við mig þá endilega sendið mér línu (í commentadálkinn, vil ekkert leynimakk)...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli