Kræst! Shout out-ið virkaði í gær en nú er það horfið eins og dögg fyrir sólu:o( Þetta ætti fekar að heita shut up!
Ég hef mikið verið að spá í hvort ég ætti að fara að eignast e-ð líf. Þar sem ég eyði mestum mínum tíma inná líkamsræktarstöð þá gæti ég svo sem fjallað um það en ég efast um að e-r nenni að lesa pistil um kolvetni og prótein! Þannig að ég lýsi hér með eftir lífi ef e-r getur reddað mér solleis.
Kannski ég ætti að fara alvarlega að íhuga að eignast kærasta, það hlýtur að fylgja með líf í þeim pakka!
Anyways, fyrir þá sem ekki vita það þá er ég að stefna á að keppa í bodyfitness 14.apríl og er þess vegna byrjuð að skera niður. Það getur farið í skapið á manni og ef þið rekist á Grumpmonster á hlaupum þá er það mjööööög líklega ég að láta skapið "hlaupa með mig í gönur" (ástæðan mun þá líklega vera sú að meira en 3 tímar eru liðnir milli máltíða hjá mér og það upplifi ég sem hungursneyð)
Maður spyr sig stundum akkuru mar lætur sig hafetta? Tja, hégómi? Líklega..!
Hvað er annars málið með þetta fucked up samfélag sem við búum í. Það var strákur sem fékk hálfs ár fangelsi fyrir nauðgun á meðan annar fékk 22 mánuði fyrir að brjótast inn í efnalaug!! Aargh, má ekki farað hugsum'edda, gæti alveg trúað mér til að brjótast inn í efnalaug í mótmælaskyni...
Getur e-r sagt mér hvort hægt sé að verða háður svona absúrd hlutum eins og að dánlóda tónlist af netinu? Mér sýnist þetta vera að fara að stefna í óefni hjá mér! Ég er líka búin að komast að því að ég er MESTI píkupoppari í heiminum. það sem er komið inná playlistann minn er t.d: Westlife, Celine Dion, Kelly Clarkson o.fl. Úff, er einhver von á að ég muni nokkurn tíma ganga út? (er ekki annars beint samband þarna á milli?)
Ég hef orðið líka miklar áhyggjur af gullfisknum mínum, honum PopEye (sem BTW er eineygður) Hann er orðinn rosalega feitur! Hann hefur greinilega ekki lesið kolvetna/prótein pistlana mína! Hann er samt í stöðugri brennslu, er syndandi allann daginn! Þetta sannar bara að það eina sem dugar almennilega er að lyfta lóðum til að komast í form! ( Gaman að minnast á það, þá er ég einkaþjálfari og síminn hjá mér er:698-4120) Var þetta nokkuð of augljóst plögg?! ;o)
Jæja, er hætt að bulla í bili. Ætla að fara að elda kjúllann fyrir morgundaginn, verði mér að góðu:oD
Engin ummæli:
Skrifa ummæli