sunnudagur, febrúar 08, 2004

Búin að telja.

Ég var að taka saman hvað safnaðist mikið og upphæðin er 26.357 kr. Gott move hjá Sveini Inga að labba söfnunarhring þegar flestir voru orðnir veeeeeel í glasi;o)

En nú er tappinn kominn aftur í bokkuna hjá mér. Ég man nánast ekkert eftir því hvað gerðist eftir kl.1, þá fór ég af Felix, yfir á Hverfis, var orðin mökkölvuð en henglsaðist nú samt á Pravda. Orri (æfingafélaginn minn sem ég bar ábyrgð á að yrði öfurölvi í gær *mwahaahahaha*) vill meina að hann hafi borgað fyrir mig inn og svo hafi ég bara farið nánast strax aftur út. Ég man samt eftir að hafa hitt eina manneskju þar þannig að ég hef ábyggilega stoppað aðeins. En orðaskipti og annað, humm segi ekki meir:-/

Held samt að ég hafi vakið mikla lukku með íþróttaálfsatriðinu mínu, allavegna virtist Jakob Frímann mjög ánægður með þetta (ekki spyrja af hverju ég tók atriðið fyrir hann!) Held reyndar að hann hafi ekkert verið ánægður, frekar orðlaus yfir þessarri klikkuðu stelpu sem skellti sér í armbeygjur á miðju gólfi (ekki venjulegar armbeygjur sko, önnur löppin er oná annarri hendinni) og svo fylgdi ormurinn í kjölfarið. Svo er ég alltaf hissa á að mér sé illt í hnénu eftir fyllerí, wonder why..!

Jæja, ætla að fara að lúlla. Takk enn og aftur fyrir mig;o)

Engin ummæli: