...datt í´ða í gær! Jájá, aldeilis búin að vera með yfirlýsingar um að tappinn sé kominn í bokkuna o.s.frv. en ókeypis bjór í ammælinu hjá Sigurlín og vodki í vatn hjá Jóa var bara of erfitt að standast! Þetta var nú samt hin ágætasta skemmtun og það kom sko ekki í veg fyrir að ég var mætt galvösk að þjálfa klukkan 9:30 í morgun.
Reyndar voru frekar fáir í bænum enda síðasta helgi mánaðarins og blankheit farin að segja til sín hjá flestum.
En nú er sótt að mér úr öllum áttum og nokkrir einstaklingar vilja meina að ég eigi heima á AA-fundi!
Pjuff, ég er kannski skemmd að einhverju leyti en ég er ekki að fíla þegar fólk gerist sjálfskipaðir sáluhjálparar og fer að þröngva inn á mann sínum lífsskoðunum og vill að maður taki upp sömu "trúarbrögð." Þetta er að verða álíka mikil plága og Herbalife-sölumenn, eða m.ö.o sölumenn DAUÐANS!
Ég hitti slatta af fólki og man meirsegja eftir öllum sem ég hitti og hvað ég sagði og allt! Miklar framfarir hjá mínum...
Hitti lítinn kettling á bílastæðinu heima í morgun þegar ég var að fara í vinnuna, var að spá í að leggja eignarhald á hann. Efast samt um að hann myndi nenn að búa í bílnum mínum, ákvað þess vegna að leyfa honum að fara frjáls ferða sinna. Hann var samt algjör dúlla.
Af Popeye er það annars að frétta að hann var lagður inná spítala með garnaflækju. Það má rekja til þess að ann syndir alltaf í sömu áttina (mjög líklega af því að hann er bara með eitt auga) þannig að læknirinn sagði honum að breyta stundum til og synda í hina áttina, þá leysist sjálfkrafa úr flækjunni. Reyndar vaknaði ég nokkrum sinnum í nótt við að hann synti utan í kúlulvegginn (mjög líklega af því að hann er bara með eitt auga og sér ekki þeim megin sko) en hann hlýtur nú að fara að læra leiðina utan að...
Jæja, pásan mín er búin. Þarf að fara að láta enn eina saklausa sál svitna, muuwahahahaha...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli