laugardagur, febrúar 28, 2004

jeminn...

Sko, það má eiginlega segja að ég sé hálfgert stafsetningarvillufrík. Innsláttarvillur eru fyrirgefanlegar og auðvitað einstaka villur sem læðast með EN tékk ðis át
Nú vil ég ekki vera vond manneskja og gera grín að öðrum en þetta er bara of fyndið til að finna ekki meðhlæjendur. En ekki setja leiðinleg comment hjá honum. Hann getur líka rakið ip-töluna ef mar gerir það.
Ég vil titla hann William Hung okkar Íslendinga (William þessi söng lagið "she bangs" í american idol á mjöööög eftirminnilegan hátt og er nú orðin þjóðhetja í USA. Held samt að flestir hlæji að honum en ekki með honum...)

Annars er lítið að frétta, til hamingju með ammælið Sigurlín, kellan orðin fertug. Kíki til hennar í teiti í kvöld, voða fjör. Verð samt AÐ SJÁLFSÖGÐU edrú! Góða skemmtun ég í kvöld, kem með nýjustu fréttir um leið og þær berast, stay tuned...

Engin ummæli: