Einn fylgifiskur þess að keppa í fitness og þurfa að skera niður er sá að maður getur farið í aaaaaaaafar vont skap! T.d er ég búin að labba um með þrumur og eldingar standandi útúr hausnum á mér í dag! Þessa stundina á ég að vera í matarklúbbi hjá Sigrúnu en þar sem ég er mjöööög tæp núna þá ákvað ég að sleppa því og er í staðinn heima að blogga og borða eggjahvítur!!! Nú hugsa flestir: "er þetta þess virði?" að eiga ekkert líf utan Sporthússins? Stundum efast ég stórlega um það, en yfirleitt er ég nokkuð sátt. Það er nebblega ákveðin fróun (ekki kynferðisleg þó, því miður! ;o)) í því að labba útí bíl kl.5:30 að morgni til, horfa í kringum sig og fatta að maður er sá eini í hverfinu sem er svona duglegur/geðveikur að rífa sig á fætur svona snemma til að fara á æfingu! Maður er nebblega alltaf að vinna pínu sigur á hverjum morgni sem er afar gott fyrir sjálfstraustið:o) En svo koma dagar eins og dagurinn í dag þar sem maður þarf að fórna einhverju sem mann langar að gera til að ná því markmiði sem maður stefnir að. Er það þess virði? Ég vona það...
Ég var líka beðin um að koma með smá leiðréttingu á því sem ég skrifaði um afmælið mitt. Minnið e-ð aðeins að bregðast mér! Það var Jóa, old buddy old pal, að þakka að labbaður var aukahringur með söfnunarbaukinn. Svo sagði Sveinn Ingi mér að það var ég sem labbaði með baukinn, ekki hann eins og ég hélt! Hehe, nú skiljiði akkuru ég ætla ekki að drekka í bráð!
Þá er öllum misskilningi hér með eytt og ég ætla að fara að hlaupa í kringum kúluna hans Poppa....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli