Mér datt meira í hug til að skrifa:oD
Ég er nebblega að spá í að taka sumarfrí í ár. Hef ekki tekið almennilegt frí frá því sumarið ´99 þegar ég + fleiri fórum til Costa Del Sol, sællar minningar. Eða reyndar man ég kannski ekki alveg details (whonder why?! Ekki svara þessu!!!) En ég man að við fórum á úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, ManU vs. Bayern Munchen á Nou camp í Barcelona (ManU vann AUÐVITAÐ 2-1) og við komum í sjónvarpinu og alles. Vorum með ofvaxinn íslenskann fána (þjóðremban;o)) og sáumst mjög greinilega í imbanum. Þetta var mjöööööög gaman..!
Ég man líka að eftir ca. 5 daga dvöl þá tók ég uppá því að slíta öll liðbönd í ökklanum á diskóteki! Og var svo ekki með pen. í leigara heim þannig að ég labbaði (eða hökti svona meira) um 3-4 kílómetar uppá hótel. Maggi reyndar bauðst til að taka mig á háhest en ég ég þverneitaði og þrætti fyrir að nokkuð væri að mér. En sem betur fer afþakkaði ég farið því hann "drapst" skömmu síðar á sólbekk á leiðinni...
Anyways, ég uppá hospital um morguninn og sett í þrýstiumbúðir og fékk hækjur. Þetta var um 6-leytið um morguninn og hann sagði mér að koma aftur um 10-leytið daginn eftir svo hægt væri að skoða mig betur. Ég fór heim og lagði mig, stillti klukkuna samviskusamlega kl.9 og lagði mig. Vaknaði svo, fór í lobbýið og bað hana að panta leigara fyrir mig, minn sem sagt á leið á spítalann. Á meðan ég hökti í átt að anddyrinu þá rann upp fyrir mér ljós, það var ekki kominn dagurinn eftir! Þetta var sami dagur og 3 tímum fyrr (ég var alveg edrú þarna fyrr um morguninn! *hóst hóst*) Jæja, best að skella sér bara í sólbað.
Um kvöldið ákváðu félagarnir (Hafrún, Heiður, Sigrún, Begga, Gústi, Maggi og Hjörtur) að fara út að borða. Ég ákvað að vera stillt og vera heima þetta kvöld af skiljanlegum ástæðum.
Ég legg mig en svo hringja Gestur, Haffi og Flóki yfir í herbergið okkar (vitleysingar sem við kynntumst í ferðinni, smullu alveg inní hópinn;o)) og af mjööög skiljanlegum ástæðum hökti ég yfir til þeirra og við fórum í drykkjuleiki:oD
Félagarnir voru allavegna pínu hissa þegar það fyrsta sem mætti þeim var ég pissfull á hækjum á hótelbarnum að kenna einhverjum Spánverjum "tequila tha icelandic way" (salt yfir öxlina, drekka tequilað og sítrónan á ennið) en svo fórum við öll á Gussa bar og gerðum okkur glaðan dag.
DAGINN EFTIR fór ég til doksa og þá kom í ljós að allt var slitið, læknirinn var ekkert sérstaklega sleipur í ensku og þegar hann sagði: "Veeery bad injury, aaaall broken" þá var mér ekkertsérstaklega skemmt:-/ En hvað eru eitt,tvö (reyndar voru þau 3) liðbönd á milli vina. Minn í gifs uppá hné takk fyrir, í 4 vikur.
Enn og aftur komið kvöld, félagarnir á Gussabar. Minn heima, af skiljanlegum ástæðum, gifsið að þorna og solleis. G,H&F hringja, félagarnir EKKERT hissa þegar ég klöngraðist útúr taxanum fyrir framan Gussabar. Og enn aftur glaður dagur...
En svona í sögulok þá stytti ég ferðina úr 3 vikum niður í 2 af því að ég nennti ekki lengur að liggja á sundlaugabakkanum í gifs uppá hné og láta sundlaugavörðinn koma og gera grín að mér: "You in the pool? hahaha" En hann var soldið sætur þannig að hann komst upp með það;o)
En til að gera langia sögu enn lengri þá var ég að spá í að biðja ykkur, mínir dyggu lesendur að koma með tillögur að áfangastað, ætla í afslöppun, er búin með djammpakkann! Og svo vantar mig líka eiginlega ferðafélaga ef e-r býður sig fram;o) Langar í sól, strönd og líkamsræktarstöð. Þá verð ég mjöööög sátt við lífið og tilveruna.
Er að fara að lúlla, góða nótt. Látið nú heyra í ykkur og hjálpið mér að finna út hvað ég ætla að gera í sumarfríinum mínu ZZzzzz
Engin ummæli:
Skrifa ummæli