sunnudagur, febrúar 01, 2004

Lilli auli er lasinn:-/

Já minn liggur í rúminu, er samt ekki ennþá orðin beint lasin, það sama og hrjáði mig í gær er ennþá að bögga mig fyrir utan að hausinn á mér er að spriiiiiiiinga. Fór nú samt í morgunbrennsluna mína en eftir hana var ég alveg off og endaði í bælinu.

En auðvitað þarf ég að vera á skjön við alla aðra þegar ég verð veik! Ég fæ nebblega ekki hita, nei ég fæ KULDA! Ég mældi mig áðan og þá var ég með 36,1 gráðu líkamshita.
Og þegar mar er veikur þá á mar skilið á fá e-ð gott að borða (víst Arnar!) og ég fékk mér lifrarpylsu og súkkulaðirúsínur, afar þjóðleg máltíð.

Annars fór ég að horfa á Ísl.mótið í bekkpressu í gær, þetta er rosalega abnormal. Það voru 5 stk. sem tóku 250 kg. eða meira! Auðunn tók meirsegja 273kg.
Það er samt rosalega fyndið að sjá hvað þessir annars dagfarsprúðu menn breytast, þeir verða svona eins og mannýg naut þegar þeir búa sig undir lyfturnar. Alveg magnað.
Ég held að ég sætti mig bara við að taka 65 kg. og held ró minni.

Reyndar eignaðist ég litla vinkonu á mótinu, við vorum nú alveg vinir fyrir en ég held að hingað til hafi Sara bara notað mig útaf fyrrv. kettinum mínum, honum Grísla. Hún og bróðir hennar Kristófer voru allavegna alltaf geðveikt næs við mig ef þau ætluðu að fara að spyrja hvort Grísli mætti koma í heimsókn.
En í gær var annað uppá teningnum, þá var ég sko í uppáhaldi:oD Það var samt bara af því að ég nennti að leika hest fyrir hana og henda henni upp í loft (ég er með harðsperrur í kálfanum eftir allt gobbedígobbið) humm, ætli hún hafi bara verið að nota mig líka í gær? Verð ég yfirgefin ef betri hestur býðst?
En þetta var voða gaman og ég hlakka til að henda mínum eigin börnum upp í loft (vona að Barnaverndarnefnd lesi þetta ekki!)

Það hefur samt sína kost að vera "veikur" og hanga heima á laugard.kvöldi. Í gær t.d tók ég herbergið mitt í gegn og bjó til risamyndaramma (þ.e risa rammi með fullt af litlum myndum) þar eru myndir af fjölskyldu og vinum allt frá frumbernsku minni. Samt best myndin af Sveini Inga ("litli" bróðir minn) þar sem hann er ca. 11 ára í loðfeld af mömmu, með húfu á hausnum og í Nokia stígvélum! Og þetta líka fegurðardrengsbros á vörum hans (tilvísun í að síðar tók hann þátt í Hr. Ísland og það var að mínu viti algjör hneisa að hann vann ekki! Og ég er ekki hlutdræg í þessu máli né öðrum)
Þar eru líka myndir af Grísla mínum sem ég þurfti að gefa með miklum trega í hjarta og dauða gullfisknum mínum sem ég man ekki hvað hét.
Allavegna mjög hjartnæmur myndarammi...

Ég skipti meirsegja um vatn og allt hjá Poppa í þrifæðinu. Mér finnst alveg magnað hvað einn gullfiskur getur kúkað mikið! Ég held ég gefi honum ennþá of mikið að borða, hann er ekkert að leggja af.
Ég tek samt hæfilegt mark á honum þegar hann er að kvarta undan hægðatregðu, ekki sýndist mér það nú í hreingerningunni í gær.

Annars er ekkert merkilegt að frétta, Arnar sagði reyndar að rassinn á mér væri ekki nógu harður en ég tek ekki mark á honum. Hann potaði í rassinn á mér með gosflösku og þess vegna tel ég að niðurstaða hans sé frekar huglæg en byggð á tölulegum staðreyndum (hann er líklegast bara svekktur af því að ég dissaði DNA-ið hans)

Stay tuned, ég öppdeita ykkur um leið og ég er í búin í kaplinum. Ég er viss um að ykkur þyrstir í að vita hvort hann gekk upp eða ekki....

Engin ummæli: