sunnudagur, febrúar 15, 2004

Nýja vinkonan mín...

...heitir Zara. Hún kemur mér alltaf í gott skap þegar ég er í lægð. Hún nebblega selur nokkuð flott föt á viðráðanlegu verði:oD Minn fór sem sagt í verslunarleiðangur í dag og ég keypti 3 boli og 1 peysu á 5000 kall. Þetta hins vegar gerir það að verkum að í hvert sinn sem ég fer í aðrar búðir þá verðum mér strax illt í rassinum yfir ripp offinu sem á sér stað! Ef ég get keypt buxur í Zöru á 3000 kall þá dettur mér ekki í hug að kaupa solleis í t.d Sautján á 7000 kall (svo efast ég stórlega um að þeir eigi til buxur í minni stærð þar!)

En þar sem ég er talin afburðasnjöll í fjármálum (humm*hóst hóst*) þá varð ég nottla að bæta upp hvað ég "græddi" mikið í Zöru þannig að ég keypti mér Nike úr á 16.000 kr. (ekki fá kast strax!) Þetta var nebblega ammælisgjöf frá mínum ástkæru systkinum, Huldu (+ f jölskyldu of course) og Sveini Inga. Þ.e þau gáfu mér helminginn og þar sem mig langaði AÐ SJÁLFSÖGÐU Í FLOTTASTA ÚRIÐ þá borgaði ég hinn helminginn. Minn er bara að græða á tá og fingri! ;o)
En til að gera nú ekki upp á milli fjölskyldumeðlima þá má ég til með að nefna að Þórunn, elsta systir mín og fjölsk. hennar gáfu mér demantshring! Fyrsti demantshringurinn minn:oD Og ég komst að því að systir mín þekkir mig betur en ég hélt, það liggur við að það standi Bjarney inní honum, hann er algjörlega ætlaður mér! Ok, þetta er frekar venjulegur silfurhringur og demanturinn er oggupons en ég varð orðlaus þegar ég opnaði kassann..! Svo gáfu mínir yndislegu foreldrar mér George Foreman grillið (sem minnkar fitu í öllum mat, það mætti halda að foreldrar mínir þekki mig líka nokkuð vel!!)

En það er ótrúlegt hvað svona verslunarleiðangur getur lyft andanum á hærra plan (ha, of hástemmd?)
Hahaha, oh well, ég skal reyna að get a grip! Eftir verslunarferðina fór ég í 1 og 1/2 tíma í brennslu til að geta fengið mér nammi með góðri samvisku. Þannig að núna ligg ég uppí rúmi, illt í mallanum af nammiáti, að blogga og hlusta á nýju ástina í lífi mínu. Hann heitir Will Young og vann idolið í Bretlandi í fyrra held ég. Ég man ekki alveg hvernig hann lítur út, held reyndar að hann sé ekkert rosa sætur, en ég er með algjört æði fyrir nýja laginu hans og gjörsamlega murka úr því líftóruna á meðan ég bulla á blogginu. Þetta er ábyggilega besta samband sem ég hef verið í, ég þarf ekki að bíða eftir að hann láti heyra í sér, ég ýti bara á play þegar ég vil. Hann lætur mjööööög vel að stjórn skal ég segja ykkur. Mar getur ýtt á play, pause, stop, forward og rewind allt eftir því hvað hentar best hverju sinni og hann verður ekkert abbó þó að ég hlusti á annað lag inn á milli! (minnir soldið á brandarann um af hverju bílar eru betri en konur! Ég er samt alveg hörð á því að mín útgáfa er betri og enn og aftur blæs ég á það að ég teljist hlutdræg!)

Núna t.d er ég að hlust á Westlife (4 í einu) og Will bíður bara spakur út á kanti. Svona á þetta að vera, ég dreg auglýsingna um DNA-ið tilbaka. Ég hef það barast fínt eins og staðan er núna...

Það er sem sagt allt að gerast, búin að eignast nýja vinkonu, orðin ástfangin og á 3 nýja boli, 1 nýja peysu og Nike úr (þið náðuð því örugglega að þetta er NIKE ÚR!) ég er sko einn mesti nike-ari ever, svona ef þið viljið vita það! ;o)
Nú er ég byrjuð að bulla og þá er orðið tímabært að fara að lúlla, góða nótt Zzzzzz

Engin ummæli: