Loksins kom að því! Setti hann á vigtina í morgun og það voru farin 2.8 grömm (sem er ótrúlega mikið á gullfiskakvarða) einnig er fitu% komin niður í 0.08 (var 0.12 í byrjun) en stefnan er að koma honum í 0.04 sem er mjög gott fyrir vel þjálfaðann gullfisk. Við breyttum bara aðeins mataræðinu hjá honum, byrjuðum að nota AST fæðubótaefni (ekkert að þakka Brynjar minn, auglýsingin er ókeypis;o)) og þá fyrst fóru hlutirnir að gerast. Við förum líka alltaf saman í brennslu á morgnana á fastandi maga. Þá set ég kúluna hans á gólfið, hann syndir í hringi en ég hleyp í hringi í kringum kúluna.
Reyndar tók Poppi þetta mað vatnsdrykkjuna einum of alvarlega (hann er svo manískur þegar hann tekur sér e-ð fyrir hendur) við töluðum um að drekka nóg af vatni en þegar ég kom heim í gær þá var hann nánast búinn með allt vatnið í kúlunni og lá bara eins og skata nær dauða en lífi á botninum. En þetta bjargaðist nú allt saman, svo pissaði hann öllu aftur og kúlan fylltist af vatni (eða reyndar gulleitum vökva, er að spá í að skipta á búrinu við tækifæri...)
En nú ætlum við mæðginin að skella okkur á æfingu, ég ætla að taka lappir með Orra en Poppi tekur sporðinn á meðan.
Stay tuned ef þið viljið fá að vita hvað þyngdir við tökum í hnébeygjunni, það hafa verið stöðugar bætingar eftir að byrjuðum á nýju fæðubótaefnunum ...
Heyrumst síðar;o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli