Ekki misskilja mig. Að sjálfsögðu finnst mér fáránlegt að karl og kona fái mishá laun fyrir sömu vinnu. Og allir eiga að að vera vinir inná heimilinu og skiptast á að elda og þvo þvottinn og solleis.
En aftur á móti, ef ég væri gallharður femínisti þá þyrfti ég að neita að fjarlægja líkamshár til að vera trú málstaðnumog helst ekki að nota meik öpp. Úff mar, ég er loðnari en persneskur köttur á fótunum og krumpaðri en bolabítur í framan (ég slefa samt ekki, mikið...) þannig að ef ég væri femínisti þá væru líkurnar á að eignast kærasta ca.-950%
Humm, samt þegar ég hugsa málið þá á ég ekki kærasta núna en ég átti heldur ekki kærasta þegar ég var nýbúin í brasilíska vaxinu og nota tætarann á leggina (tætarinn tætir hárin upp með rótum, mjööööög ekki þægilegt) sem þýðir að það skiptir engu máli hvort ég er femínisti eða ekki, ég geng hvort sem er ekki út (finnst ykkur ég tala í hringi? Munið bara að þó að ég skipti oft um skoðun þá er mín skoðun alltaf rétt skoðun sama hver sú skoðun er þá stundina)
En ef ég ætla að vera femínisti þá nenni ég samt ekki að mótmæla fegurðarsamkeppnum, þá þyrfti ég t.d að afneita bróður mínum sem er einn af fegurðardrengjum Íslands og í mínum augum sá lang sætasti (munið, mín skoðun=rétt skoðun)
Og væntanlega að mótmæla sjálfri mér, ætli fitness keppnir falli ekki undir sama hatt. Allavegna er það ekkert annað en hégóminn sem rekur mig áfram í þessu! Hey, ég viðurkenni það allavegna;o)
En ef ég eignast einhvern tímann kærasta (nei, ég er ekki desperat þó ég tali mikið um kærastaleysi! Það er annaðhvort að tala um það eða kolvetni/prótein/fitu og ég geri nóg af því í vinnunni minni. Þið vitið að ég á ekkert líf. Ekki nema þið viljið að ég tali um línuívilnun af því að ég las grein um það á mbl.is (by the way, ef einhver getur sagt hvað línuívilnun er þá bendi ég enn og aftur á commenta dálkana))
anyways, ef ég eignast einhvern tímann kærasta þá mun ég fjarlægja lopann af löppunum og held áfram að sparsla í hrukkurnar. En ég ætla sko ekki að fá mér sílikon í skapabarmana. Eða eiginlega bara ekki sílikon í neina barma, þetta flækist bara fyrir. Um leið og það er orðið meira en handfylli þá er það farið að fara til spillis. Vona samt að enginn sé með handfylli af skapabörmum, nema hann/hún/það sé með mjög litlar hendur. Kannski er maður með handfylli ef maður miðar t.d við hobbita, en þeir eru reyndar með ofvaxnar lappir, ætli hendurnar á þeim séu líka stórar? (svara í commenta dálkinn takk)
Að lokum ætla ég svo að hrósa sjálfri mér í hástert fyrir hvað ég er búin að vera dugleg að standa við áramótaheitið mitt. Ég ætlaði sem sagt að minnka það allverulega að fara í ljós, hérna eru ástæðurnar fyrir því. Fyrir þá sem nenntu ekki að lesa þetta þá er ég farin að hafa áhyggjur af hrukkumyndun og kannski pínu af húðkrabbameini því ég hef fengið byrjunarstigs einkenni þess(er með 5 sentimetra ör á lærinu til að sanna það). Það var ekki sætt skal ég segja ykkur. Hef reyndar líka tvisvar fengið fæðingarbletti sem voru potential sortuæxli. Þannig að, eins og staðan er þá er eiginlega bara heimskulegt af mér að fara í ljós. En fólk sem t.d reykir veit líka að það eru miklar líkur á að fá lungnakrabbamein þannig að við mannskepnan erum bara veiklunduð og gerum ekki alltaf það sem við vitum að er okkur fyrir bestu:-/
En talandi um að minnka ljósabekkjanotkun þá er ég frá áramótum búin að fara ca. 15 sinnum í ljós og á geislavarnir.is er talað um að óhætt sé að fara á 10-15 sinnum í ljós Á ÁRI!!! Ég er sem sagt aðeins á undan áætlun. Ekki nema ég eyði restinni af árinu sem albínói...
En staðan er sem sagt þessi, ég er femínista eða andfemínista albínói sem er að reyna að hætta að fara í ljós af því að ég er með sílikon í skapabörmunum og deita hobbita. (skilduð þið þetta ekki líka einhvern veginn svona??)
Er farin að lúlla, verð búin að ákveða í fyrramálið hvort ég er femínisti eður ei. Stay tuned...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli