föstudagur, febrúar 27, 2004

Ég er hommi! Og er stolt af því..!

Vá hvað ég er orðin þreytt á fréttum um giftingar samkynhneigðra í San Fransisco! Auðvitað eiga samkynhneigðir að fá að giftast og það eru brot á mannréttindum að leyfa það ekki. Og ég veit ekki hvernig svona forheimskir einstaklingar ná að komast inná þing og hvað þá að gerast forsetar Bandaríkjanna. Hvernig geta giftingar samkynhneigðra verið ógn við fjölskylduna (eins og Hr. Bush vill meina)? Mér finnst femínistar persónulega meiri ógn!!!
Svo virðist þetta fáfróða fólk halda að samkynhneigð sé smitandi, þ.e ef 2 hommar eða lesbíur fá að ala upp barn þá er mjöööög líklegt að það verði samkynhneigt! *Úffpúff* þarf ég að segja meira? Hversu stupid er hægt að vera??

En úr einu í annað, eins og oftast.
Ég er hætt við að keppa, ef ég á að vera hreinskilin þá eiginlega barasta nennti ég þessu ekki lengur! Ég er með ofurhæg efnaskipti og þegar ég var á 3. æfingunni minni einn daginn, draghölt á brettinu þá spurði ég sjálfa mig hvort þetti væri þessi virði. Svarið var nei og ég fer í hnéaðgerð 17.mars (allir að hugsa vel til mín þá) Ætli ég verði ekki bara að sætta mig við að fitness er ekki fyrir mig (en verð að reyna að halda mig frá fatnessinu!) Hef áður farið úr fitness í fatness, má ekki gerast aftur!

Jæja, er samt að spá í að drullast í brennslu. Datt oní nammiskálina áðan. Stay tuned...



Engin ummæli: