sunnudagur, febrúar 08, 2004

Takk fyrir mig...

Ég sem sagt hélt upp á ammælið mitt í gær:oD Það var rosa gaman og 50 lítrar af bjór hurfi eins og dögg fyrir sólu! Svo var tilboð á barnum og ég ásamt fleirum nýtti mér það óspart. Við getum bara sagt að nú man ég af hverju ég drekk svona sjaldan..! Minn tekur alltaf út skammtinn á einni kvöldstund! En ég hafði vit á því að drulla mér heim áður en í óefni var komið og svo þegar runnið er af mér kem ég með nýjustu tölur um hvað við söfnuðum mikið handa litla stráknum.

Eins og ég sagði í gær þá erum við flest vanþakklát að dirfast að liggja í volæði yfir einhverju jafn ómerkilegu og 5 aukakílóum eða skökku miðnesi (er að tala fyrir hönd sjálfrar mín! ;o))eða bollukinnum eða einhverju sem alveg er hægt að vinna bót á. Aðrir eru ekki jafn heppnir í lífinu og lenda í veikindum, dauðsfalli náins ættingja eða eitthvað álíka sem blikknar í samanurði við "vandamál" okkar hinna, Eins og ég Hafrún ræddum einu sinni um þá erum við bara í nokkuð góðum málum ef við getum leyft okkur að hafa áhyggjur bara af hliðarspikinu, það hlýtur að þýða að allt annað í lífinu er nokkuð OK. Ég vona að þeir sem komu í gær og fögnuðu hækkandi aldri og auknum hrukkum með mér hafi notið kvöldsins og ég vona innilega að litli strákurinn og fjölskyldan hans muni hafa gagn af peningunum.

Ég átti yndislega kvöldstund með flestu af því fólki sem mér þykir endalaust vænt um og vil þakka þeim sem komu. Ég er ábyggilega heppnasta manneskja í heimi að þekkja svona mikið af frábæru fólki. Takk öll saman fyrir að vera til;o)

Engin ummæli: