Mar verður þá að fara að panta tíma í aðgerð til að láta setja sílikon í barmana, efri og neðri, ef maður er að fara að spranga um á bikiníi í sumar! Ég er svo heppin að ég þarf ekki að setja í rassinn, og ég veit svo sem ekki með skapabarmana, hef ekki hugmynd um hvar á skalanum ég er þar. Ég prófa að bera mig saman við einhverjar í næstu sturtuferð í Sporthúsinu. Hins vegar hef ég hingað til lifað í þeirri fáfræði að ekki þætti mjög fallegt að vera með skapabarma oll over. Oh well, maður er víst þræll tískunnar og verður bara að gjöra svo vel að fylgja því sem tískulöggur heimsins segja. Og ef þeir vilja stóra skapabarma, þá fá þeir stóra skapabarma!!! Eða, leyfið mér að hugsa málið í nokkra daga....
ZZzzzzzzzzzzzzzz
Engin ummæli:
Skrifa ummæli