Þegar ég byrjaði að blogga þá kom ég opinberlega útúr skápnum sem tölvunjörður (sem þýðir tölvunörd, ef e-r yngri en 20 ára er að lesetta) ég er nú kannski ekki 100% njörður þar sem ég kann ekkert rosalega mikið á tölvuna mína og á þennan titil því ekki fyllilega skilið. Það mætti segja að ég sé svona tvíkynhneigð í tölvuheiminum, þ.e ég blogga en les samt blöðin (fæ ekki allann minn fróðleik af .is eða .com síðunum)
Ástæðan fyrir skrifum mínum nú er sú að ég er ósátt við hvað ég fæ lítið af commentum! Ég skoðaði síðuna hjá toggapop og á einum stað fékk hann 26 comment! Ég held samt og trúi því staðfastlega að vinir hans þori að koma fram opinberlega og viðurkenna tölvukynhneigð sína en mínir vinir eru að passa uppá að halda kúlinu og halda sig þar af leiðandi inn í skápnum sínum. En ég get alveg sagt ykkur það að mar getur alveg verið kúl tölvunjörður og ég held það missi enginn virðingu fyrir ykkur þó þið laumið inn einu og einu commenti. Koma svo, ég verð að ná toggapop í vinsældum..! (nei, ég þarf ekki alltaf að snúa öllu upp í keppni, maður getur samt alveg keppt í ýmsum greinum eins og t.d servíettusöfnun (btw. Jói, ég er að rústa þér, gekk í hús áðan og fékk 4 servíettur!))
Allir úr felum og leggja sitt af mörkunum...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli