þriðjudagur, febrúar 10, 2004

*úff púff* aldurinn færist yfir...

Jæja, þá er maður orðinn hálffimmtugur! Er ekki frá því að ég hafi séð nokkrar aukahrukkur þegar ég vaknaði! En eins og ég segi þá eru hrukkur bara reynsla þess sem maður upplifað, algjör óþarfi að skammast sín fyrir það. (ein að réttlæta óhóflega notkun ljósabekkja sem hafa orsakað það að miðað við 25 ára einstakling þá er ég töluvert mikið hrukkótt!;o))

Ég var líka að komast að því að litli strákurinn sem við styrktum heitir Torfi Lárus og er 7 ára. Mamma hans hringdi í mig og fannst þetta afskaplega fallegt af okkur og vildi þakka innilega fyrir.

Þeir sem ekki vita hvað ég er að tala um þá bað ég um að í staðinn fyrir gjafir og blóm þá vildi ég að fólk kæmi með 500 kr. í afmælið mitt sem runnu til styrktar Torfa Lárusi. Við söfnuðum rúmlega 26.000 kr.
Þau (Torfi & fjölskylda hans) þurfa að fara reglulega til Bandaríkjanna í aðgerðir þar sem Torfi litli þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi sem orsakar ofvöxt í eitlum eða e-ð svoleiðis, (ég er ekki alveg með þetta á hreinu)önnur hendin á honum er t.d eins og útblásin blaðra og þar sem sú hendi er miklu þyngri en hin þá er hann kominn með hryggskekkju og alls kyns kvilla útfrá þessu (eins og hitt hafi ekki verið nóg fyrir litla greyið:-/) Ástæðan fyrir því að ég ákvað að styrkja hann en ekki einhvern annan er sú að hann er ótrúlega duglegur og á flestum þeim myndum sem ég hef séð hann á þá er hann alltaf brosandi. Sem sagt, ég heillaðist bara af honum og langar að leggja mitt af mörkunum til að hann geti lifað sem eðlilegustu lífi þrátt fyrir sjúkdóminn. Og þeir sem komu í afmælið mitt tóku mjög vel í þetta og allir voru mjög rausnarlegir (flestir bættu við upphæðina eftir að veigarnar höfðu runnið ljúflega niður;o))

En þar sem gamla konan er orðin sybbin þá ætla ég að hætta að skrifa og skríða undir sæng. Góða nótt;o)

Engin ummæli: