miðvikudagur, mars 03, 2004

Á alvarlegri nótum

Ég hef verið að hugsa, geri reyndar soldið mikið af því, það truflar mig soldið að hafa minningargreinar í mogganum. Ég er kannski að borða morgunmatinn minn og fletta í gegnum blaðið og svo allt í einu flettir maður og það kannski blasir við manni mynd af litlu barni eða fólki á mínum aldri eða mömmu og pabba aldri. OK, mér finnst ekki sorglegt að sjá minningargreinar um aldrað fólk, svolleiðis er bara gangur lífsins, en að byrja daginn á að hugsa um dauðann og að mínir nánustu gætu fallið frá whenever er ekki mjög góð byrjun á deginum:-/ Auðvitað hefur maður gott af því af og til að fá smá wake up call og fatta að það er ekkert sjálfsagt að vinir og ættingjar manns verði alltaf til staðar. En ég er á móti því að þetta sé gert á þennan hátt, myndi allavegna vilja vera "vöruð við" á síðunni á undan eða e-ð. Ég er þannig gerð að ég get tekið uppá því að bera allar áhyggjur heimsins á herðum mér og ég þarf ekki á því að halda að verða döpur og missa matarlystina útaf einhverju sem ég þarf ekki að velta mér uppúr (en geri samt!)
Þetta er alls ekki illa meint og fólk sem missir ættingja sína og þá sérstaklega börnin sín á samúð mína alla. En ég held að hægt væri að finna hentugri vettvang fyrir minningargreinarnar. Ég er ekki að biðja um álit, þetta er bara e-ð sem ég hugsa um á hverjum morgni þegar ég er að borða morgunmatinn minn og mig langaði bara að koma þessu frá mér...

Engin ummæli: