laugardagur, mars 13, 2004

Ég er í slæmum félagsskap!

Og svo er ég líka veiklunduð! Jájá, vídeókvöld hjá Jóa er næg ástæða fyrir mig til að djammast. Hann fór sem sagt á Arnolds classic (sem er stærsta (held ég) vaxtarræktar-og fitnessmót veraldar) og í kvöld ætlum við að fara að skoða vídeóið af því og að sjálfsögðu gefur það okkur tilefni til að lyfta okkur aðeins upp:oD Skelli samt skuldinn alfarið á Jóa ef ég dett í´ða...

Veit samt ekki alveg hvort að heilsan leyfir, er farin að hallast að því að krampaverkirnir sem ég er búin að vera með í maganum séu ekki túrverkir (án þess að ég ætli að fara útí nánari details!) En ég ætla að leggja mig pínu og vona að minn verði sprækur sem lækur, kátur sem skáti o.s.frv. þegar ég vakna.

Hef líka ákveðið að koma útúr skápnum með það að ég er FM-hnakki. Og mér er alveg sama hvað þið fordómafulla rokkarapakk segið við því (nei, ég er ekki bitur þó SUMIR geri grín að tónlistarsmekk mínum!)
Hef samt stundum sotlar áhyggjur af mér, hvort þetta sé eðlilegt að vera svoooooona mikill píkupoppari. En ég hef ekki ennþá komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé afbrigðilega hegðun (abnormal behaviour skv. bókunum hennar Hafrúnar) Það er nebblega soldið fyndið að Hafrún á það til að skilgreina það sem ég geri (sem mér finnst bara gaman því þessi manneskja er gangandi viskubrunnur)
Eins og hún fræddi mig t.d um það að þegar ég ákveð að þjálfa á sunnudegi til að koma í veg fyrir að ég detti í´ða á laugardegi þá kallast það behaviour control En reyndar virkar það ekki núna því ég ætla á djammið í kvöld, að sjálfsögðu ekki edrú, en ætla samt að þjálfa á morgun. Gaf þeim tíma seinni partinn og gaf út viðvörun um að ég gæti mögulega, hugsanlega, kannski ekki verið í mínu besta ástandi.
Það kallast þá ábyggilega behaviour out of control...

Jæja, ætla að leggja mig svo að ég verði fersk í kvöld. Skál í boðinu;o)

Engin ummæli: