Ég var að lesa grein á mbl.is um Britney Spears, hún var sem sagt að gefa út myndband þar sem hún setur á svið sjálfsmorð. Textinn fjallar um sambandsslit og á víst að vera um sambandslit hennar og Justins nokkurs Timberlake. Nú hafa e-r samtök farið fram á að myndbandið verði ekki sýnt af því að þau eru svo hrædd um unglingar farið að "herma eftir" henni ef þeim líður illa.
Það sem pirrar mig mest er af hverju drullast foreldrar ekki til
í 1.lagi að gefa sér tíma til að ala upp börnin sín,
í 2.lagi að tala við börnin sín og útskýra fyrir þeim að ef manni líður illa þá leitar maður sér hjálpar en drepur sig ekki og
í 3.lagi að vera ekki að varpa ábyrgðinni yfir á annað fólk að vera fyrirmyndir fyrir börnin sín heldur að standa sig sjálf í stykkinu.
Og fyrir utan það þá veit ekki betur en svo að Britney Spears er sprell a live í dag þannig að það er ekkert til að herma eftir!!
Huh! Bjarney er brjáluð og er ekki að gúddera foreldra í dag...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli