Gærdagurinn var eiginlega bara hell. Byrjaði að vera óglatt allan fyrripartinn en svo byrjaði fjörið seinni partinn. Ég hélt engu niðri:-/ Náði reyndar að hengslast með Jóa á Mekong og fékk mér gómsæta sjávarréttasúpu. En svo skilaði ég henni nánast um leið og ég kom heim (to much info?)haha
En auðvitað greip mín tækifærið og sendi brósa útí sjoppu að kaupa nammi:oD Ég naut þess að borða það og svo klikkaði það heldur ekki að ég skilaði því aftur. Mjög hentugt í megruninni. (Ekki samt halda að ég muni nota þessa aðferð áfram eftir að veikindunum líkur!) Nei, þá verður sko bara nammi einu sinni í viku.
Ég held að ég sé komin með króníska ritstíflu:-/ Veit aldrei hvað ég á að skrifa. Reyndar eru síðustu vikur og mánuðir búnir að vera ansi tíðindalitlir hjá mér (ef frá eru taldar síðustu helgar!) þannig að það er kannski ekki skrýtið að ég sé búin að vera með ritstíflu. Og svo er víst lítið um að vera þegar mar hangir svona veikur heima hjá sér. Er reyndar að fara í litun á eftir hjá elskunum mínum í Bættu útliti, þá kannski gerist eitthvað sniðugt. En ég vona svo sannarlega að það skili sér í bættu útliti hjá mér. Ég er ekkert sérstaklega mikil dúlla þessa dagana!
En ég er hætt að bulla, kem með nýjustu fréttir um leið og þær berast eða berast ekki. Ég get þá bara skáldað eitthvað sjálf, þ.e.a.s ef ritstíflan brestur....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli