sunnudagur, mars 28, 2004

Shit!!

Mikið rosalega er the bachelor súr þáttur! Ég hef einstaka sinnum dottið inn í þetta en guð minn góður, what a waste of time! Að þessar stelpur skuli í alvörunni láta niðurlægja sig svona. Þeim líður líka illa allan tímann. Afbrýðissemi, óöryggi og allar slæmar tilfinningar mannskepnunnar kraumandi hele tiden. Alveg steikt. Og svo eru þær grenjandi þegar þær eru látnar fara: "I love him so much and he broke my heart" *sniff sniff* Aldrei myndi mér detta í hug að fara í keppni til að vinna hylli karlmanns, ég get ekki séð að maður geti sýnt sitt rétta fés með þessa pressu á sér, að honum verði að líka betur við mig en hinar. Mér finnst þetta allavegna stupid...

Og hvað er líka málið með sundskýlur?! Þetta er viðbjóðslegur "fatnaður"! Skil ekki að karlmenn skuli láta sjá sig í þessu ógeði. Ullabjakk! Vonandi er ég ekki að móðga neinn núna, en ef e-r sem les þetta fer í sundskýlu í sund þá hefur sá hinn sami gerst brotlegur við siðgæðisvitund mína og er sekur um að valda sjónmengun. Ég vil einnig benda þeim vinsamlega á að skokka út í næstu íþróttavöruverslun og kaupa sér stuttbuxur.

jæja, aftur í sófann.....................

Engin ummæli: