...að ég hafi fengið gubbupest. Allavegna hætti ég bara að æla í gærkvöldi og er alveg fín núna. En þetta var sko ekkert sældarlíf. Ég fór í klippingu og litun í gær og í miðri klippingu hafði ég mig afsakaða og "hljóp" (eiginlega hökti) inn á bað að pjúka og svo var Brynjar svo indæll að keyra mig heim og sem betur fer var hann með poka í bílnum! En þar sem ég var bara búin að koma niður ananas hlunk og svala þá var ælan eiginlega soldið krúttleg. En frá og með núna er ég hætt að tala um ælur og annan viðbjóð. Mæli samt ekki með því að fá gubbupest eftir aðgerð...
Hef heldur ekkert meira að segja, er með snillinginn Óskar Dag í heimsókn og því miður get ég ekki íþróttaálfast með honum núna:-/ Hann er samt loksins búinn að samþykkja að ég sé með stærri vöðva en Sveinn Ingi en honum finnst ManU ennþá vera stelpulið. Ég er s.s bara hálfnuð í heilaþvottinum en þar sem Liverpool er sko ekki að gera góða hluti þá ætti ég kannski að geta þrýst á hann að skipta um lið(Ok, Manchester er svo sem ekkert að brillera en við erum samt ofar!). Hann er líka bara 4 ára þannig að ef ég leik nógu mikið við hann og gef honum kannski smá nammi þá ætti ég að vera orðin nokkuð save...
Verð bara að passa að pabbi hans komist ekki að því, allavegna ekki fyrr en hann er orðinn gallharður stuðningsmaður Manch.United. Eins og staðan er núna þá heldur hann með Liverpool United þannig að I´m getting there:oD
En ég ætla ekki að vanrækja litla snillinginn. Ekki búast við innleggi á næstunni, ég hef EKKERT að segja, er meirsegja hætt að æla þannig að ég get ekki einu sinni frætt ykkur um það. En ég skal gera mitt besta til að reyna að eignast líf. Stay tuned...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli