þá er enn og aftur kominn þunnudagur. Enn og aftur skellti kellingin sér á djammið og enn og aftur var kannski fengið sér heldur mikið í annann fótinn! Hélt uppá þynnkuna með sveittum burger&fries. Mjöööög gott. Tókst samt að týna öllu draslinu mínu, veskinu með símanum og alles. En Binni dyravörður fann það og var svo elskulegur að koma því til mín. Sjúkk mar..!
Við byrjuðum sem sagt í partýi hjá Orra og þar var drykkjuleikur tekinn með trompi (mæli ekki með því ef mar vill muna restina af kvöldinu) svo var haldið á Hverfisbarinn og þar hitti ég fullt af fullu fólki.
Annars eru djömmin farin að renna soldið saman, maður hittir mikið sama fólkið, fer alltaf á sama staðinn og drekkur alltaf aðeins of mikið. Ætla samt ekki að gefa út neinar yfirlýsingar um að ég sé farin í pásu! Held nebblega að ég þurfi að djamma næstu helgi...
jæja, ætla að henda mér aftur í sófann. Er búin að horfa á Arsenal og ManU gera janftefli og núna er basket í imbanum, Grindavík-Keflavík. Ætli maður verði ekki að gerast smá grindjáni núna og halda með UMFG. Gotta go...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli