Þetta spirulina dótarí er að virka heavy! Ég er ekkert búin að vera þreytt í dag þrátt fyrir syndir helgarinnar þar sem ekki fór mikið svefni. En ég er alveg búin að vera kátur skáti í dag. Ég vil skella skuldinni á nýja ofur vítamínið mitt (það mætti halda að ég væri á prósentum við að selja þetta! Ég er það ekki sko.)
Það er samt frekar óþægilegt að það eru nokkrir búnir að horfa geðveikt skringilega á mig í dag og jafnvel glott út í annað en ég get ómögulega munað hvort ég hitti þær manneskjur á djamminu eður ei. Kannski er ég bara svona paranojuð yfir þessu öllu saman, en ég held að það sé nokkuð augljóst að EINHVER þarf að fara að hugsa sinn gang. Það er líka vonlaust að koma sér í toppform þegar mar er að djamma svona mikið og ég get svo svarið það að ég held að rassinn á mér sé farinn að síga aðeins. Ég má byrja að lyfta í næstu viku og þá verður tekið framstig af krafti til að hífa rassinn aftur upp á sinn stað.
Og í lokin vil ég fá að deila því með ykkur að ég skil ekki appelsínugul föt. Mér finnst e-ð absúrd við þau. En það er bara mín skoðun. Fór að hugsa um þetta þegar ég sá gaur á æfingu í appelsínugulri peysu og það var ekki að gera sig. Það var meira að segja Adidas peysa og ég verð að segja að ég skil ekki í Adidas að framleiða appelsínugul föt. Nike myndi aldrei gera það! Og þá er ég ekki að vera hlutdræg! Ok, kannski pínu af því að ég held með Nike.
Talandi um það, ætla að skreppa upp í Perlu og athuga hvort ég finn einhver íþróttaföt á góðu verði en mar getur samt látið sjá sig í (af því að ég er EKKI NEITT snobbuð í þessum málum!) Stay tuned ef þið viljið vita hvort ég finni e-ð sem passar utan um rassinn. En eins og við rassálfarnir segjum:" Það er alltílæ að vera með stóran rass ef hann er stinnur!" ;o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli